Við drifum Bryndísi Evu í myndatöku í gær en Ragnhildur Edda var í góðu yfirlæti hjá Sísý og Fíu á meðan. Í stuttu máli þá stóðu snúllurnar okkar sig frábærlega og hér er smá sýnishorn úr myndatökunni.
Þetta er eiginlega besti aldurinn til að mynda þau líka – farin að vera nokkuð örugg með að sitja en ekki farin að færast neitt úr stað. Hægt að stilla þeim upp og geifla sig eða fara í týnd og bö og þá koma brosin á færibandi.
Yndislegar myndir af Bryndísi Evu <3 Það hefur munað mikið um þessar fáeinu vikur frá því síðast hvað varðar setstöðuna. Bara yndisleg! Ragnhildur var líka alveg frábær hérna hjá okkur á meðan-alveg til fyrirmyndar
STÓRglæsilegar myndir!! Algjör fyrirsæta hún Bryndís Eva.
Þetta er eiginlega besti aldurinn til að mynda þau líka – farin að vera nokkuð örugg með að sitja en ekki farin að færast neitt úr stað. Hægt að stilla þeim upp og geifla sig eða fara í týnd og bö og þá koma brosin á færibandi.
Frábært. Skemmtilegust þessi með symmetrísku tárunum og örlitlum hissa svip