Af foreldraþrjóskunni

Á föstudag ákváðum við Torfi að láta líta á Ragnhildi Eddu. Hún var um það bil að gera út af við okkur með væli, suði og almennri óþekkt eins og að henda í okkur matnum sínum nú eða grýta honum í vegginn. Annað hvort var eitthvað að plaga litla skottið eða þá að hún fór úr því að vera ljúfasta barnið yfir í óviðráðanlegan púka á einni nóttu. Hún fékk svo þá greiningu að vera með lungnabólgu og eyrnabólgu í báðum eyrum. Þó svo að við séum ekki hrifin af sýklalyfjum þá koma þau að góðum notum í vissum kringumstæðum og við urðum að játa okkur sigruð. Eftir 2 daga á lyfjunum vaknað svo ljúfa, káta stelpan okkar og púkinn var á brott. Nú er bara að vona að bólgurnar hverfi eftir einn skammt svo hún þurfi ekki að súpa þennan viðbjóð í fleiri vikur. Nokkrar myndir af stúlkunni:


4 Responses to “Af foreldraþrjóskunni”

  1. Jii, hvað hún er komin með sítt hár og miklar krullur! Ég verð að fara að hitta ykkur…
    Kv, Brynja mágkona.

  2. Hárið vex og stúlkan lengist mikið þessa dagana. Hárið var þó snyrt um daginn. Krullurnar voru reyndar extra miklar um helgina þar sem að stúlkan neitar að sofa í rúminu sínu á daginn – vill bara vagninn, og ekki var hægt að stinga henni út í kuldann svona lasinni. Svo hún var sett léttklædd í vagninn og út í bílskúr – greinilega vel hlýtt þar samt því hún vaknaði nokkuð sveitt og vel krulluð… en mjög hress líka og það er fyrir öllu.

  3. Sendum þessari sætu skottu góðar batakveðjur. Hún hefur skipt svolítið um gír og er farin að líkjast þér ansi mikið Eva.

    Bestu kveðjur, Svanhildur og Arnaldur Kári

  4. Við skilum kveðju til prakkarans. Hún er vissulega farin að líkjast mér aðeins meira.. held líka að hún sé að fá skapið mitt sem er öllu verra ;-) Pabbi hennar er nefnilega mun seinþreyttari til vandræða.

eXTReMe Tracker