Við komum ótrúlega miklu í verk á þessum síðasta degi ársins 2009. Við drifum í nokkrum hversdagslegum hlutum eins og þrifum og eldamennsku en markverðara var þó að við fórum með stelpurnar okkar inn í Kjarnaskóg og lékum okkur aðeins í snjónum. Það voru örfáir gönguskíðamenn í skóginum og svo við með snjóþotuna. Það var [...]
Filed under: General on December 31st, 2009 | 4 Comments »
Jæja, þá eru komin jólin og við höfum það merkilega gott í snjóleysinu. Aðfangadagur gekk bara nokkuð vel þrátt fyrir að tvær snúllur við matarborðið þyrftu auðvitað sína þjónustu. Ragnhildur Edda komst að því að malt og appelsín er hennar uppáhalds drykkur – maður getur tæplega neitað barninu um malt og appelsín á aðfangadag! Og [...]
Filed under: General on December 25th, 2009 | 4 Comments »
Nú varð mælirinn fullur hjá mér. Ég slysaðist til að fara inn á mbl, nokkuð sem ég hef dregið mjög úr, og þá var þar þessi frétt: Af hverju ætti læknir að vinna á Íslandi? Vissulega eru einhverjir læknar að leita sér að störfum erlendis en fyrirsögnin finnst mér ýja að því að hér sé [...]
Filed under: General on December 17th, 2009 | 4 Comments »
Ragnhildur lærir ýmislegt á leikskólanum og m.a. það að jólin eru að koma – ekki að hún hafi hugmynd um hvað “jól” eru eða hvað þeim fylgir en hún er alveg með það á hreinu að jólin eru að koma. Svo hefur hún hitt jólasveina og lært þó nokkuð af jólalögum sem henni þykja bráðskemmtileg… [...]
Filed under: General on December 16th, 2009 | No Comments »
Við drifum Bryndísi Evu í myndatöku í gær en Ragnhildur Edda var í góðu yfirlæti hjá Sísý og Fíu á meðan. Í stuttu máli þá stóðu snúllurnar okkar sig frábærlega og hér er smá sýnishorn úr myndatökunni.
Filed under: General on December 9th, 2009 | 4 Comments »
Ég prjónaði jólasveina húfu á Ragnhildi Eddu í fyrra sem lukkaðist ágætlega en nú er húfan sú orðin of lítil. Ég hófst því handa við að prjóna aðra og ætlaði bara að hafa hana aðeins stærri. Nú eftir að hafa prjónað 5 húfur sem allar eru ómögulegar held ég að ég sé komin með réttu [...]
Filed under: General on December 8th, 2009 | No Comments »
Amma og afi í Kópavoginum hafa óskað eftir myndum til að stytta sér stundir við próflestur. Það hefur reyndar verið ansi mikið að gera hjá okkur svo eitthvað er myndaúrvalið fátæklegt. Það er búið að baka piparkökur og skera út laufabrauð, panta jólakortin og moka alveg helling af snjó. Bryndís Eva situr núna óstudd, klappar [...]
Filed under: General on December 3rd, 2009 | 5 Comments »
Þegar Eva var ólétt af Ragnhildi og ég var farinn að hlakka til að verða pabbi þá hugsaði ég með mér að það væri örugglega það notalegasta í heimi að kúra uppí sófa undir teppi með dóttur sinni og lesa bók. … þetta tók rúm tvö ár. Í kvöld gerðist þetta: R: Pabbi kúra ÉG: [...]
Filed under: General on December 2nd, 2009 | 1 Comment »