Þá er Ragnhildur Edda orðin veik. Ég náði í hana á leikskólann í gær um það leyti sem Ágúst Torfi steig um borð í flugvél til Reykjavíkur. Við mæðgur höfum því haldið okkur innivið og horft á Stubbana, Dýrin í Hálsaskógi og Nemo svo fátt eitt sé nefnt. Ragnhildur hefur líka bakað þessar fínu kökur [...]
Filed under: General on October 30th, 2009 | 3 Comments »
… eftir 11 tíma törn er ómetanlegt að það sé ófremdarástand, systur í baði og allt á floti.
Filed under: General on October 28th, 2009 | 2 Comments »
Það kemur fyrir að manni er boðið eitthvað sniðugt.. nú eða ekki. Á maður að skella sér á einn í viðbót? … svo brá maður sér í austurátt, bara tékka hvort þeir eigi einhverja aura þarna hinumegin við hafið.
Filed under: General on October 25th, 2009 | 3 Comments »
Undanfarna tvo daga hefur ansi margt gerst hjá okkur í Fannagilinu, og við öll náð merkilegum áföngum hvert á sínu sviði. Bryndís Eva reið á vaðið og uppgötvuðust tvær tennur í neðri góm hjá þeirri stuttu í gærkvöldi. Hún kvartar ekkert undan tanntökunni og heldur uppteknum hætti og brosir út í eitt. Þetta eru fyrstu [...]
Filed under: General on October 24th, 2009 | 4 Comments »
Ég náði skemmtilegri myndasyrpu af Bryndísi Evu nú í kvöld. Ragnhildur var að leika sér með jólasveinahúfu sem ég prjónaði á hana síðustu jól. Húfan passar nú betur á Bryndísi Evu og Ragnhildur Edda samþykkti að Bryndís mætti máta húfuna. Nokkrum sekúndum síðar skipti sú stóra um skoðun og ákvað að ná í húfuna aftur. [...]
Filed under: General on October 21st, 2009 | 2 Comments »
Í dag heyrði ég Ragnhildi Eddu nota “ég” í fyrsta skipti…. og hún notaði það óspart. Það var sama hvað það var hún vildi fá að gera allt sjálf, “ég gera sjálf, nei mamma, ég gera sjálf” heyrðist óma úr eldhúsinu á svona sirka mínútu fresti á tímabili. Svo vorum við að telja litlu tærnar [...]
Filed under: General on October 15th, 2009 | 6 Comments »
Það hefur verið heldur kalt hjá okkur undanfarna daga en loksins á að hlýna og það verður smá smuga fyrir mig að koma niður haustlaukum. Ragnhildur Edda hefur þó verið alsátt við kuldatíðina þar sem hún hefur fengið að spranga um í 30 ára gamalli lopapeysu – hún hefur eiginlega tekið ástfóstri við peysuna merkilegt [...]
Filed under: General on October 13th, 2009 | 1 Comment »
Það hefur verið heldur leiðinlegt veðrið hér í Fannagilinu í dag svo við familían höfum brasað meira innivið en úti. Skruppum svo í afmæli til Emilíu Óladóttur sem varð 3 ára í dag og skemmtum okkur öll vel. Ragnhildur Edda komst þar í tæri við nýjar og sérlega flottar dúkkur, dúkkuvagna og kerrur og hljóp [...]
Filed under: General on October 10th, 2009 | 2 Comments »
Við renndum suður um helgina í tilefni af því að afi minn Torfi Jónsson varð níræður á laugardaginn. Það var gaman í afmælinu – það er ekki svo oft sem þessi litla fjölskylda okkar kemur saman. Afkomendur afa eru 10 – Ragnhildur og Bryndís langafastelpur eru lang minnstar og einu langafabörnin. Myndir úr afmælinu – [...]
Filed under: General on October 6th, 2009 | 2 Comments »
Tók mig til að skoðaði nokkrar myndir sem ég hef smellt af á símanum mínum undanfarnar vikur. Í tilefni af því þá bætti ég við síðuna svona sniðugu myndadóti sem sýnir myndirnar með ægilegum “fídus”. Gaman að því. . … svo setti ég líka nýtt útlit en það verður líklega ekki langlíft.
Filed under: General on October 5th, 2009 | 3 Comments »