Myndir

Þá erum við búin að setja inn myndir frá afmælinu – einnig eru þarna nokkrar myndir af Bryndísi Evu á sundnámskeiði, þær má nálgast hér.

2 ára

Þá er 2 ára stelpan okkar farin í leikskólann og við Bryndís njótum þess að vera í rólegheitum heima. Það er hvítt yfir öllu hér í Fannagilinu, heiðskírt og blankalogn. Það var haldið upp á afmæli stóru stelpunnar í gær og mættu nokkrir vinir og vandamenn í lítið kaffiboð, og auðvitað tvær nunnur líka. Þetta [...]

Gullbrá

Þessi mynd af Ragnhildi Eddu birtist á vef leikskólans hennar um daginn. Hún minnir mig helst á ævintýra persónuna Goldilocks eða Gullbrá. Hilda amma var ekki lengi að skella myndinni inn á vefinn sinn enda hljóta þessir gylltu lokkar að minna hana á lítinn Ágúst Torfa. Um daginn ákvað ég að kominn væri tími á [...]

Týnt

Nú þegar við erum komin með tvær snúllur er fyrirferðin orðin töluvert meiri á okkur. Fleira sem þarf að græja þegar maður fer útúr húsi með familíuna, fleira sem þarf að pakka þegar farið er í ferðalög og almennt bara fleira sem þarf að muna eftir… þá sérstaklega þarf að muna eftir báðum börnunum. Maður [...]

Í vikulok

Dagarnir okkar snúast flestir um að sjá um stelpurnar okkar – á þessum bæ er ræs kl 6, Bryndís leggur sig svo 9-11, Ragnhildur 12-14 og Bryndís aftur 14-16. Matur er kl 18 og farið í svefninn kl 20… við foreldrarnir lognumst svo oft útaf um 21, en endumst stundum aðeins lengur. Við náum nú [...]

Myndarleg

Nú er komið að myndauppfærslu – nýtt albúm komið, svokallað “september albúm”. Í þessu albúmi má finna nokkrar nýjar myndir frá síðustu dögum. Annars er það helst í fréttum af barnauppeldi við mynni Glerárdals um þessar mundir að Bryndís fékk sinn eigin trip-trap stól í dag (var að vísu búinn að vera til lengi en [...]

Hagsmunir heimilanna

Ég fylgdist með viðtali Sigmars við Þórð Sigurðsson, formann Hagsmunasamtaka heimilanna. Þar var Þórður að furða sig á því að fjármálastofnanir hafi ekki fengist til að setjast að samningaborðinu með Hagsmunasamtökum heimilanna. Af viðtalinu var ljóst að hann taldi hagsmuni heimilanna vera þá að höfuðstólar lána yrðu “leiðréttir”, að þeir sem tóku myntkörfulán til að [...]

Útstimplun

Einhverra hluta vegna erum við fjölskyldan öll á síðustu orkudropunum þessa dagana. Ágúst Torfi er hreinlega veikur og rétt svo nær að sinna því mikilvægasta í vinnunni og kemur svo heim og leggst í rúmið. Ragnhildur er að byrja sína fyrstu alvöru viku í leikskólanum. Hún er vön að leggjast út í vagn í 2 [...]

eXTReMe Tracker