Snúllu og dúllumyndir

… hvað er að gerast, það bara svoleiðis mokast inn myndir – tvær viðbætur sama daginn. Þetta hefur ekki gerst í háa herrans tíð. Var að setja inn myndir af Ragnhildi og Bryndísi, níu myndir sem ég bætti við maí albúmið sem má finna HÉR – nýjustu myndirnar neðst. Svo ein góð sem var tekin [...]

Vetur – næstum á enda

… og komið sumar – og hægt að fara bæði á sleða og hjól að vild. Það er að segja ef maður hefur tíma milli þess að stunda vinnu og sinna dætrum . Í tilefni af þessu öllu saman ákvað ég að setja inn nokkrar myndir frá vetrinum – þær má finna HÉR. Aldrei þessu [...]

Enn er farið í sveitina

Það var dagmömmudagur á Kristnesi í dag. Þá taka sig saman dagmömmur og drífa krakka og foreldra í sveitaferð að skoða dýrin og girðingarnar. Nunnurnar voru þar engin undantekning og við mættum með báðar stelpurnar. Þetta fannst Ragnhildi ekkert lítið gaman… eins og sjá má á myndum sem ég var að bæta við sama albúmið [...]

Farið í sveitina

Við fengum okkur bíltúr í dag litla fjölskyldan. Ferðinni var heitið í Gautlönd þar sem sauðburður stendur sem hæst, þrjár að bera og allt í fullum swing. Ragnhildur og Bryndís voru að sjá eina gagnlegustu skepnu sem þrífst á þurru landi, sauðkindina, í fyrsta skipti… í návígi. Ragnhildur var svolítið smeik fyrst en eftir smá [...]

Um reiðhjól

Í Fréttablaðinu í dag er fjallað um þjófa við Ylströndina. Fyrsta setningin er: “Hjólreiðaeigendur sem hafa sleikt sólina undanfarna dag í sólinni á Ylströndinni hafa margir hverjir snúið til baka reiðhjóli fátækari“. OK… hjólreiðaeigendur… ég á reiðhjól en ég veit ekki til þess að nokkur maður eigi hjólreið! Höfundur skrifar einnig undanfarna dag – og [...]

Allt að gerast

Nú er bara brostið á sumar… og samt er maður ennþá á fullu í sleðatúrum. Brá mér uppá Kerlingu á sleða í fyrradag og aftur í gærkvöldi – það er bara svo ansans gaman að þeytast uppá þessi fjöll og horfa í kringum sig í blíðunni. Í gærkvöldið var blóðrauður himinn og allt eins og [...]

Mánaðar gömul

Hún Bryndís okkar er mánaðar gömul í dag og braggast vel. Hún reyndist vera orðin 3,5 kg í síðustu vigtun sem okkur þykir bara ansi gott. Hún sefur, drekkur og óhreinkar bleyjur… jafnvel allt í sömu andrá enda fjölhæfur kvenmaður hér á ferð. Það hefur hinsvegar reynt töluvert á okkur foreldrana undanfarna viku þar sem [...]

Draumalandið

Fór á kvikmyndina Draumalandið áðan, góð áminning þar enda 2-3 ár síðan að maður las bókina. Tilfinning mín eftir að hafa horft á myndina er að við séum gólandi hálfvitar… hvern andskotan erum við eiginlega að hugsa? Ég hef reyndar verið nokkuð staðfastur andstæðingur stóriðju og virkjana þeim tengdum í mörg ár, og varð jafnvel [...]

Nýjar myndir

Nú er víst kominn tími á nokkrar myndir. Við bættum 10 myndum við nýjasta myndaalbúmið á síðunni – það má nálgast hér. Nýju myndirnar eru neðst – þar má finna nokkrar góðar af Bryndísi litlu…. …já, við erum búin að velja nafn á “litluna” og skal hún heita Bryndís .

eXTReMe Tracker