Það er búið að vera gestkvæmt hjá okkur síðustu daga – Hildur og Þórdís hafa verið hjá okkur og Þórdís hefur farið stórum á Andrésar Andar leikunum. Brynja og Þórhildur lentu svo í morgun og verða hjá okkur um helgina – það er því góð semning í Fannagilinu þessa dagana. Settum inn nokkrar myndir á [...]
Filed under: General on April 25th, 2009 | Comments Off
Fjölskyldufaðirinn er eins og sést á síðunni ansi duglegur að bregða sér á vélsleða og hefur því minna farið fyrir myndatökum og myndbirtingum – ég hef reyndar náð nokkrum myndum milli þess sem ég sinni þeim systrum. Svo reyndar tók linsan á myndavélinni okkar upp á því að bila svo það er öllu erfiðara að [...]
Filed under: General on April 21st, 2009 | 5 Comments »
Posted via email from atgangur.net
Filed under: General on April 16th, 2009 | 1 Comment »
Fyrstu fjölskyldumyndirnar voru teknar á annan í páskum. Það reyndist þrautin þyngri að fá Ragnhildi Eddu til að sitja fyrir með okkur þar sem stúlkan sú er á móti öllum frelsissviptingum… hvort sem þær fela í sér að liggja kyrr meðan skipt er um bleyju eða sitja stillt meðan smellt er af myndum – hún [...]
Filed under: General on April 15th, 2009 | 3 Comments »
Páskarnir 2009 verða vafalítið taldir með betri páskum á þessu heimili. Litla stelpan okkar er í þessum skrifuðu orðum að verða viku gömul og dafnar vel, sefur og drekkur eins og best verður á kosið. Ragnhildur hefur líka farið á kostum og verið með allskyns skemmtiatriði (og önnur sem eru ekki alveg eins skemmtileg). Allt [...]
Filed under: General on April 12th, 2009 | 4 Comments »
Nú eru þær mæðgur komnar heim af fæðingardeildinni – alsælar og fínar. Dúllan (við þurfum nú að fara að finna nafn á hana þessa, “Dúlla” er ekki að gera sig til lengdar) er öll hin sprækasta og hangir á brjósti móður sinnar daginn út og inn. Setti inn nokkrar myndir af heimkomunni og fyrstu kynnum [...]
Filed under: General on April 7th, 2009 | 5 Comments »
Posted via email from atgangur.net
Filed under: General on April 7th, 2009 | 3 Comments »
Kl 22:50 í gærkvöldi (sunnudaginn 5. apríl 2009) fæddist okkur Evu (Eva sá nú að mestu um vinnuna) stráheil og fín stúlka. Stúlkan mældist 53cm og vóg 3090gr (rétt rúmar 12 merkur). Ólíkt Ragnhildi okkar (sem varð 18 mánaða um daginn) þá kom þessi eftir hefðbundnum leiðum og gekk fæðingin alveg ljómandi og heilsast móður [...]
Filed under: General on April 6th, 2009 | 11 Comments »
Jæja, nú dregur til tíðinda á norðurlandinu – allavega í okkar litlu fjölskyldu. Ég er ekki frá því að Eva sé bara farin uppá spítala blessunin og ef það fer eins og síðast þegar hún var lögð inn þá gæti verið að það bætist við fjölskyldumeðlimur hjá okkur innan fárra stunda. … ég er bara [...]
Filed under: General on April 5th, 2009 | 8 Comments »
Posted via email from atgangur.net
Filed under: General on April 5th, 2009 | Comments Off