Að hressast

Ragnhildur Edda er óðum að hressast. Hitinn hefur lækkað heilmikið og hún er farin að dunda sér við hitt og þetta. Ekki er hún nú enn orðin hraust, það þarf að þurrka hor á 2 mínútna fresti og hugga þegar hún dettur á bossann því þráðurinn er ósköp stuttur. Svo svaf hún til hádegis í [...]

Kæra dagbók

Í dag vorum við Ragnhildur heima og verðum líklega á morgun líka. Snúllan er með 40,3°C hita og alveg í slappara lagi og Eva stakk bara af til Sódómu og er þar í stelpnapartíum og á fundum hjá bjórframleiðendum (þetta er kallað vinna). En við feðgin látum það ekki á okkur fá og stöndum vaktina [...]

Veika Lìsa

Ragnhildur er ì heitara lagi blessunin… Svo við feðginin erum bara heima ì bötnun Posted by email from atgangur.net (posterous)

Partar

Það hefur verið í nógu að snúast undanfarið – sem er vel – ef maður snýst ekki þá stendur maður kyrr og það er ómögulegt. Sumir myndu vilja snúa útúr þessu og segja að hægt sé að færast úr stað án þess að snúast og því í raun snúast ekki en vera samt ekki kyrr… [...]

Aular

Ég hef nú ekki lagt það í vana minn að skrifa hér um málefni líðandi stundar en nú finnst mér full ástæða til að skrifa þó ekki væri nema par setningar. Þvílíkir endemis aular og undirlægjur sem þjóðin kaus yfir sig síðast – menn sem nenna hreinlega ekki (eða treysta sér ekki) að takast á [...]

Hressandi

Ragnhildi finnst svakalega gott að fara í bað á kvöldin enda er baðstundin hennar ekki af verri endanum. Hún á báta og endur til að leika með í baðinu en auk þess mætir pabbi alltaf með gítarinn og spilar fyrir hana lög sem hún dillir sér við. Skemmtiatriðin halda svo áfram þegar hún er tekin [...]

Hjálmar frá Bólu

… er víst enn að – sá þessa vísu eftir hann: Kveðja til ráðamanna Spikuðu landeyður finniði fjandann og fáið að skríðí hans kör. Takið svo andskotans efnahagsvandann og etið með hlandsýrðri mör. – Hjálmar bloggar, kallinn kominn með net í skúrinn, síðuna má finna hér.

Vanagangur

Já, þrátt fyrir bankakreppu, verðbólgu og vaxtatíð þá gengur lífið sinn vanagang. Ragnhildur fer á dagheimilið sitt kl 8 á morgnana og er sótt kl 4 en á meðan verkar pabbi fisk og mamma situr við tölvu. Kvöldmatur er svo kl 6, bað kl 7 og í háttinn kl 8 – góð rútína sem virðist [...]

eXTReMe Tracker