Við fórum með Ragnhildi í myndatöku um síðustu helgi og vorum að fá afraksturinn í hendurnar. Þetta var nú ansi skrautlegt safn mynda og ljóst að þegar maður er nýbúinn að læra ganga og klifra þá er lítil þolinmæði fyrir því að sitja kyrr og brosa eins og einhver dúkka. Þessar myndir hafa þó sinn [...]
Filed under: General on October 29th, 2008 | 6 Comments »
Kom upp sú hugmynd að taka bara upp þýska markið í stað krónunnar – er það ekki þjóðráð? Það er víst ekkert verið að nota það um þessar mundir og nóg til, hægt að fá þennan pappír á slikk, eiginlega bara fyrir flutningskostnaðinn…
Filed under: General on October 29th, 2008 | 1 Comment »
Því miður er ég ekki svo forsjál að hafa keypt jólagjafirnar á sumarútsölunum og þegar nóvember nálgast þarf maður að fara að spá í hvað sé eiginlega hægt að gefa fólki… svo maður sé klár í búðarrápið í desember. Það sem ég er samt eiginlega forvitnust um þessi jólin er hvernig fer með jólagjafir nýráðinna [...]
Filed under: General on October 28th, 2008 | 2 Comments »
Við Torfi skruppum til New York um daginn. Ragnhildur fékk að vera heima á Íslandi á meðan og var í góðu yfirlæti hjá ömmu sinni og afa í Kópavoginum. Mun hún hafa fengið að sofa út alla morgna og kúra uppí bæði á kvöldin og morgnana… allt í miklu uppáhaldi hjá þeirri stuttu. En við [...]
Filed under: General on October 27th, 2008 | 2 Comments »
Það er kominn tími á fréttir af henni Ragnhildi okkar. Í stuttu máli eru helstu framfarirnar þær að hún er farin að ganga. Fyrir nokkrum vikum fór hún að sleppa takinu og taka nokkur skref óstudd, svo fjölgaði skrefunum jafnt og þétt og í hvert skipti sem hún datt á rassinn brosti hún og klappaði [...]
Filed under: General on October 25th, 2008 | 6 Comments »
Fimm sannanir fyrir því að nú er árið 1975: 1. Við eigum í stríði við Breta 2. Það eru gjaldeyrishöft 3. Það ríkir óðaverðbólga 4. Vinsælustu lögin eru með ABBA og Villa Vill 5. Forsætisráðherran heitir Geir og er Sjálfstæðismaður
Filed under: General on October 22nd, 2008 | 5 Comments »
Nú þegar fjárhagsáhyggjur hellast yfir landann koma sálfræðingar og geðlæknar í viðtöl og mæla með því að fólk passi uppá að fá nægan svefn til að bæta geðheilsuna. Þetta er örugglega gott og blessað – alltaf endurnærandi að fá góðan svefn. Ragnhildur er sérfræðingur í miklum svefni og náði ég tveimur myndum af henni nýlega [...]
Filed under: General on October 13th, 2008 | 1 Comment »
Mér fannst þetta viðtal ansi áhugavert. Mikið hefur verið fjallað um peningamarkaðssjóði því stór hluti þjóðarinnar ávaxtaði fé sitt í slíkum sjóðum þar sem þeir hafa gegnum tíðina gefið aðeins betri ávöxtun en innistæðureikningar. Fyrir það fyrsta finnst mér athyglisvert að það skuli yfirhöfuð verið að stinga upp á því að slíkur sjóður eigi að [...]
Filed under: General on October 10th, 2008 | 4 Comments »
An American said: “We have George Bush, Stevie Wonder, Bob Hope, and Johnny Cash.” And an Icelander replied: “We have Geir Haarde, no Wonder, no Hope, and no Cash”. … eða staðreynd. Reyndar eru bæði Bob Hope og Johnny látnir, þannig að þetta er nú eitthvað gallaður brandari þegar öllu er á botninn hvolft. kv. [...]
Filed under: General on October 8th, 2008 | 3 Comments »
Til tilbreytingar og upplyftingar eru hér myndir af henni Ragnhildi Eddu. Hún fékk þetta pæjudress í afmælisgjöf og þegar við heimsóttum langafa hennar síðustu helgi var hún dressuð upp og myndir teknar af snúllunni eins og vera ber. Vona að þetta fái marga til að gleyma krepputali og peningamálum.. a.m.k. eitt augnablik.
Filed under: General on October 7th, 2008 | 2 Comments »
Stóratburðir í dag… en samt veit maður ekki alveg um hvað þetta blessaða frumvarp er. Maður horfir bara á hvern flokkformanninn á fætur öðrum koma í pontu á Alþingi og lýsa því yfir að nú þurfi landsmenn að standa saman, að nú sé eitthvað stórt og slæmt í vændum, að innistæður séu tryggðar og nú [...]
Filed under: General on October 6th, 2008 | 4 Comments »