Það var snjóföl yfir öllu þegar við vöknuðum í morgun og snjóar enn örlítið. Það er nokkuð síðan að fjöllin gránuðu en þetta er í fyrsta skipti sem snjóar í Fannagilinu þetta haustið. Það var eiginlega bara hressandi að fara út í kuldann í morgun í dúnúlpunni. Sem betur fer fékk Ragnhildur bæði vetrarúlpu og [...]
Filed under: General on September 30th, 2008 | 2 Comments »
Ég var á fundi um daginn og þá kom einn fundarmanna með skemmtilegt innskot um þróun tungunnar. Það er nefnilega lítið þekkt staðreynd að orðið “virði” stigbreytist á eftirfarandi hátt: Lítils-virði Einskis-virði Eimskips-virði Þátturinn, Mál í þróun, kveður að sinni.
Filed under: General on September 29th, 2008 | 5 Comments »
Hún Ragnhildur Edda okkar átti afmæli í gær. Kl 16:34 var nákvæmlega liðið ár frá því hún kom í heiminn og í tilefni af því var slegið upp veislu og boðið hinu og þessu fólki til veislunnar. Afmælisbarnið stóð sig vel og sat í 13 föngum og lét bara nokkuð vel af vistinni. Fólk gerði [...]
Filed under: General on September 28th, 2008 | 3 Comments »
Síðastliðið sumar, seint í júlí, átti ég leið suður á land og urðu þá á vegi mínum tvær furðuverur. Þjóðverjar sem eru það sem þar í landi er nefnt “Smiður á ferð”. Þetta er eitthvað mikið dæmi hjá þeim, 13 hefðir, búningur, og ég veit ekki hvað og hvað… Allavega, Þjóðverjar eru stórundarlegir og þessi [...]
Filed under: General on September 23rd, 2008 | 5 Comments »
Mér finnst afar viðeigandi að þegar nafnið mitt er slegið inn í google.com þá kemur í ljós að efsta á blaði er sú staðreynd að ég er á afrekaskrá Frjálsíþróttasambands Íslands… skárra væri það nú eftir öll íþróttaafrekin sem maður á að baki .
Filed under: General on September 22nd, 2008 | 5 Comments »
Nú fyrst maður hefur verið með allra slappasta móti í vefsíðuskrifum undanfarnar vikur (og hugsanlega mánuði) þá safnast fyrir svipmyndir… þó minna hafi líka verið tekið af þeim en vera mætti. Áhugavert dót sem orðið hefur á vegi mínum undanfarið: Lettinn stendur hér innanbæjar á Akureyri, það sem var einusinni rúta stendur innarlega í Hjaltadal [...]
Filed under: General on September 21st, 2008 | 2 Comments »
Jæja, loksins fáum við einhverjar jákvæðar fréttir – ljósmæður búnar og semja og krónan og hlutabréf að rétta aðeins úr kútnum. Eftir að hafa fengið eintómar fréttir af frjálsu falli allra hluta sem hafa gengi, gjaldþrotum, fellibyljum, líkamsárásum, verkföllum o.þ.u.l. var kominn tími á einhverjar jákvæðar fréttir. Ég reyndar tók eftir því að starfssamningur ljósmæðra [...]
Filed under: General on September 19th, 2008 | Comments Off
Var að taka til á símanum mínum og þá rifjaðist upp fyrir mér þessi forláta viðgerð sem undirritaður framkvæmdi í útlandi fyrir ekki svo löngu síðan… Þetta er svokölluð redding. Segjum sem svo að bíll aflagist vegna óhóflegrar nálægðar við aðra umferð, t.d. þannig að framstuðarinn sé ekki nema hálfur á. Sjá mynd: Þá má [...]
Filed under: General on September 18th, 2008 | 2 Comments »
Mér fannst alger snilld sem Tryggvi Þór Herbertsson sagði í Kastljósinu áðan varðandi krónuna og Evruna. Hann vildi meina að það væri ekki rétt að kenna krónunni um allt sem illa fer – setti fram bestu samlíkinguna sem ég hef heyrt varðandi þetta mál hingaðtil: “Nákvæmlega eins og veðrið úti, það myndi ekkert breytast þó [...]
Filed under: General on September 16th, 2008 | 9 Comments »
Það er víst lítið um færslur á þessari síðu og þær fáu sem eru, eru um Ragnhildi. Það verður sjálfsagt þannig í nokkrar vikur í viðbót en svo stendur til að bæta um betur, virkja kommentin og fara að hefja lífgunartilraunir. En þá af Ragnhildi…. Hún hefur verið ólík sjálfri sér undanfarnar vikur, pirruð, þreytt [...]
Filed under: General on September 14th, 2008 | Comments Off
Ragnhildur er byrjuð í gítartímum hjá pabba sínum. Þau æfa daglega en sem stendur byggist kennslan aðallega á því að kenna henni grunnhljómana G-C-D. Hún hefur ekki alveg náð hljómunum en kann að búa til mikinn hávaða sem henni þykir alveg nógu stór áfangi svona þegar maður er 0 ára. Þessir tímar eru í uppáhaldi [...]
Filed under: General on September 8th, 2008 | Comments Off
Fyrsta vikan hennar Ragnhildar hjá dagmömmunum gekk eins og í sögu. Hún var hrókur alls fagnaðar og þegar pabbi hennar sótti hana á föstudag þá faðmaði hún eina nunnuna áður en hún skreið til pabba síns og var tilbúin að fara heim. Helgin var svo ágæt hjá okkur, ég var veðurteppt í Reykjavík fram á [...]
Filed under: General on September 1st, 2008 | Comments Off