Ragnhildur Edda er 9 mánaða gömul í dag. Hún hefur þroskast hratt undanfarnar vikur, er farin að tína upp í sig mat, getur dundað sér heillengi á gólfinu með smá dót en er ekki farin að hreyfast hratt úr stað ennþá… dregur sig eiginlega áfram á maganum. Lifrarpylsa og brauð með lifrarkæfu er í miklu [...]
Filed under: General on June 27th, 2008 | Comments Off
Ragnhildur Edda fór til ljósmyndara í síðustu viku, nánar tiltekið 19.júní, og notuðum við tækifærið og létum mynda ömmu, afa og langömmu hennar í leiðinni. Á kvenréttindadaginn þótti svo við hæfi að taka mynd af kvenpeningnum, enda erum við fjórar konur í beinan kvenlegg. Hér er smá sýnishorn af fyrirsætunni – og okkur hinum sem [...]
Filed under: General on June 23rd, 2008 | Comments Off
Við höfum víst ekki verið dugleg að henda inn nokkrum orðum hér á síðuna, en látið hendur standur þeim mun lengra fram úr ermum annarsstaðar. Það hefur verið í nógu að snúast hjá okkur og sér ekki fyrir endann á framkvæmdum. Við réðumst í að bera olíu á pallinn okkar sem tók okkur um 2 [...]
Filed under: General on June 23rd, 2008 | Comments Off
Við Ragnhildur Edda skelltum okkur í klippingu í gær og veitti sko ekki af. Við vorum báðar komnar með óstýrláta lubba sem var gott að losna við. Mér fannst þó fullmikið að greiða 2000 kr fyrir 10 mínútna snyrtingu á litla kollinum hennar Ragnhildar ofaná þær 12.000 kr sem kostaði að snyrta kollinn minn. En [...]
Filed under: General on June 12th, 2008 | Comments Off
Já, eins og Eva skrifaði þá hefur verið í nógu öðru að vasast en að rita eitthvað á atganginn. Ég til að mynda fjárfesti í öðrum vélsleða um daginn með talsverðu veseni og á nú tvo tjónaða vélsleða – sem að einhverjum ástæðum hljómar betur í mín eyru heldur en að eiga einn tjónaðan vélsleða…. [...]
Filed under: General on June 10th, 2008 | Comments Off
Svona meðan við erum að finna okkur tíma til að henda inn myndum eru hér nýjustu tölur Ragnhildar Eddu. Hún fór í 8 mánaða skoðun í morgun og reyndist vera orðin 8,1 kg og tæpir 74 sm. Hún heldur því uppteknum hætti og er löng og grönn… bara flott eiginlega
Filed under: General on June 10th, 2008 | Comments Off
Við höfum verið heldur löt við það að setja eitthvað inn á atganginn. Það var gerð spam árás á síðuna svo að hún var tekin niður og í framhaldinu þurftum við að slökkva á commenta kerfinu. Nú sem sagt er síðan komin í lag, en commenta kerfið er óvirkt. Það stendur til að kippa þessu [...]
Filed under: General on June 9th, 2008 | Comments Off