Ragnhildur fékk fjórhjól í jólagjöf, þriggja mánaða… það er ekki seinna vænna að byrja . Hún kann vel við sig á hjólinu og slappar bara af undir stýri. … næst (eða næstum næst) verður það með mótor!
Filed under: General on December 25th, 2007 | 2 Comments »
… og farsælt komandi ár. Við óskum ykkur öllum gleðilegra jóla um leið og við þökkum fyrir líðandi ár. Þetta ár hefur verið með þeim allra viðburðaríkustu hjá okkur – hús, hjónaband og hnáta. Við viljum sérstaklega þakka öllum þeim sem hafa gert árið enn eftirminnilegra. Ykkar, Torfi, Eva og Ragnhildur Edda
Filed under: General on December 24th, 2007 | No Comments »
Sumir vita miklu minna eins og dæmin sanna. Hér kemur einmitt eitt dæmi: Nú fyrir jólahátíðina er verið að aka út allskonar sendingum út um hvippinn og þannig vill til að Eimskip sjá ástæðu til þess að senda einhvern heim til okkar með árlegt almanak Eimskipa. Þetta væri alls ekki í frásögu færandi nema fyrir [...]
Filed under: General on December 22nd, 2007 | 2 Comments »
Uss, nú erum við foreldrarnir komin með hiksta vegna þess hve mikið við höfum dregið það að setja inn nýjar myndir af henni Ragnhildi Eddu okkar. Úr því hefur nú verið bætt með þessu myndaalbúmi. Annars er það helst að frétta úr þroskasögunni að Ragnhildur er farin að hlæja, hló helling í gær þegar hér [...]
Filed under: General on December 17th, 2007 | 2 Comments »
Ragnhildur Edda fékk ekki í skóinn í nótt. Stekkjastaur hefur sennilega ekki vitað af henni, enda nokkuð nýleg stelpan. E.t.v. miða jólasveinarnir við það að börnin séu farin að ganga enda kannski ekki ástæða til að eiga skó nema maður geti gengið svo sum eins og eitt eða tvö skref. Nú var Ragnhildur sérlega góð [...]
Filed under: General on December 12th, 2007 | 3 Comments »
Fór aðeins inn á e-bay núna áðan, bara svona til að skoða hvað menn eru að selja – ýtti á einhverja takka og svo kom allt í einu: “You won” … ég er svo steinhissa. Þetta er það fyrsta sem ég kaupi á e-bay ef frá er talinn liðónýti símavírinn sem ég keypti frá Kína [...]
Filed under: General on December 6th, 2007 | 5 Comments »
Sumum finnst nóg komið en öðrum alls ekki. Það er fyrir seinni hópinn sem ég set nú inn eins og eitt albúm með 11 myndum af henni Ragnhildi litlu – þetta albúm má finna hér. Annars er lítið að frétta af litlu fjölskyldunni. Ég var að vísu veðurtepptur í vikunni sem er eitthvað sem maður [...]
Filed under: General on December 2nd, 2007 | 2 Comments »