Ragnhildur heldur áfram að skoða heiminn sinn og uppgötvar eitthvað nýtt á hverjum degi. Hún tók upp á því í vikunni að hlæja að fíflalátunum í pabba sínum. Hann Torfi hefur verið veðurtepptur í Reykjavík í tvo daga en við mæðgur vonumst til að fá hann heim um helgina svo við getum endurtekið hláturköstin. Hún [...]
Filed under: General on November 30th, 2007 | 1 Comment »
Það eru víst tveir mánuðir liðnir frá því að Ragnhildur kom í heiminn. Á þessum tveim mánuðum hefur hún afrekað margt, eins og að aka suður til Reykjavíkur og fá sér hressingu í þjóðvegasjoppunum í Víðigerði, á Brú og í Borgarnesi, verið aðalnúmerið í tveimur veislum og að sjálfsögðu verið skírð. Hún lætur ungan aldur [...]
Filed under: General on November 27th, 2007 | 5 Comments »
…inn myndum? Það er allavega alvag ljóst að það hefur ekki rignt inn færslum á atgang undanfarið. Ég vildi gjarnar geta sagt að það sé 79% klárt að það batni til muna á næstu klukkutímum en það væri óábyrgt. Það er þó aldrei að vita. Nú eru allavega komnar nýjar myndir af henni Ragnhildi okkar, [...]
Filed under: General on November 25th, 2007 | 4 Comments »
Í dag var Ragnhildur Edda skírð í Kópavogskirkju að viðstöddum nánustu ættingjum. Hún stóð sig vel stúlkan, svaf bara megnið af tímanum en opnaði augun rétt á meðan að Haukur afi bar vígt vatn að litla kollinum. Þetta var falleg látlaus athöfn eins og vera ber fyrir litla stúlku. Það var svo haldin þessi líka [...]
Filed under: General on November 17th, 2007 | 5 Comments »
Helgin var nokkuð annasöm hjá okkur svo það tafðist aðeins að setja inn nýtt myndaalbúm – en það er að finna hér. Það hefur ýmislegt drifið á daga okkar, svo sem óteljandi bleyjuskipti, mjólkurdrykkju í óhófi og mikið söngl en sem betur fer engar andvökunætur. Stúlkan verður svo skírð um næstu helgi og mun þá [...]
Filed under: General on November 12th, 2007 | 1 Comment »
Ragnhildur varð 6 vikna gömul í dag. Í tilefni af því fórum við mæðgur á foreldranámskeið hjá Heilsugæslunni og hlustuðum á fyrirlestur þar sem aðallega var fjallað um skilnaði… merkilegt nokk! Það var reyndar ýmislegt annað rætt en þessi mikla ræða um skilnaði höfðaði ekkert sérstaklega til mín. Svo reyndar fór stúlkan í 6 vikna [...]
Filed under: General on November 8th, 2007 | 6 Comments »
Við Björn fórum á tónleika í gær, Ný Dönsk 20 ára. Ég fór síðast á tónleika með þeim köppum í janúar 2004, en það var nú svolítið plat. Hinsvegar voru síðustu alvörutónleikarnir á 15 ára afmælinu og þá var gríðarstemmari í Þjóðleikhúsinu. Þetta var 12. nóvember 2002 og einhvernveginn gróf ég upp myndasíðu sem við [...]
Filed under: General on November 7th, 2007 | 4 Comments »
Við höfum nú í gegnum tíðina ekki verið duglegasta fólkið við að setja myndir á myndasíðuna okkar en þegar þrýst er á mann hægri vinstri af ættingjum og vinum sem búa fjærri þá verður maður að drífa í þessu reglulega. Nýjustu myndirnar af erfingjanum má finná á myndasíðunni – beinn hlekkur á nýasta albúmið er [...]
Filed under: General on November 4th, 2007 | 5 Comments »
Það hefur snjóað heilan helling hér á Akureyri undanfarna daga og örugglega stutt í fyrstu skíðahelgi vetrarins. Við búum í götu sem ber nafn með renntu enda fáar götur jafn snjóþungar og Fannagilið. Í garðinn okkar mæta svo jafnan krakkarnir með snjóþoturnar sínar enda fínasta brekka hérna hjá okkur. Hér eru tvær svipmyndir frá deginum [...]
Filed under: General on November 1st, 2007 | 4 Comments »