Við erum ekkert skárri en hinir nýbökuðu foreldrarnir sem halda að hinir og þessir vilji endilega lesa um og sjá myndir af nýfæddu barni þeirra lon og don. Í anda þess kemur hér annar myndaskammtur, nú af degi 2 og 3 í lífi þessa einstaklings sem á eftir að breyta okkar lífi svo um munar. [...]
Filed under: General on September 29th, 2007 | 8 Comments »
Það gleður mig að greina frá því að fyrr í dag, nákvæmlega kl. 16:34, fæddist okkur Evu dóttir. Ég las um það einhverntíman fyrir stuttu að nýbökuðum foreldrum þættu vanarlega nýburar sínir fullkomnir – hvað sem því líður er ég u.þ.b. 100% viss um að snúllan okkar er fullkomin . Þetta fullkomna eintak er 15 [...]
Filed under: General on September 27th, 2007 | 20 Comments »
Brynja mágkona á afmæli í dag en ekki virðist bumbubúinn ætla að heiðra hana með því að deila með henni afmælisdegi. Kúlan enn á sínum stað og bara stækkar. Myndin var tekin í gærmorgun og svipurinn á mér segir sennilega alla söguna… væri gott að fara koma þessu barni í heiminn. Það hefur svo ýmislegt [...]
Filed under: General on September 23rd, 2007 | 4 Comments »
… nei, ekki aldeilis. Enda er að koma helgi og óþarfi að æsa sig eitthvað. Afkvæmið er bara rólegt í móðurkviði og lætur sér fátt um finnast. Hinsvegar Helgi Jóns, frá Hánefsstöðum, er víst orðinn faðir í fyrsta sinn (svo vitað sé) og fæddist honum og konu hans Sonju stráheill erfingi nú fyrir mjög stuttu [...]
Filed under: General on September 21st, 2007 | 3 Comments »
Torfi er farinn í verkfall, tímabundið. Þegar hann var búinn að hengja upp mynd fyrir mig og skella þurrkaranum uppá þvottavélina og tengja svo græjurnar lét hann sig hverfa … inni í bílskúr. Torfi sest nefnilega afar sjaldan niður, nema þá helst til að horfa á einn Friends þátt eða tvo. Fyrir honum er það [...]
Filed under: General on September 20th, 2007 | 2 Comments »
… nei nei, það er ekkert að frétta. Eva er ekki neitt léttari í dag heldur en fyrir helgi þannig að hún leggur sig bara duglega yfir miðjan daginn og sefur svo alla nóttina – held að hún hljóti að vera að safna orku . Engar fréttir eru engar fréttir! p.s. Derek leit í heimsókn [...]
Filed under: General on September 19th, 2007 | 2 Comments »
(barn ennþá í maga Evu og því tilvalið að skrifa um eitthvað annað) Ég fór í stuttan skrepp til Grímseyjar um daginn, 2-3 tíma stopp í norðurhöfum, rétt svona til að líta framan í skeggja. Ég vann eitt sinn í Grímsey í saltfiski í nokkrar vikur fyrir nokkrum árum (sumarið 1991) og hef ekki komið [...]
Filed under: General on September 14th, 2007 | No Comments »
Eins og komið hefur fram þá búum við nokkuð ofarlega á Akureyri – eiginlega hálfa leið upp í Hlíðarfjalli. Í gær mátti sjá snjó í Hlíðarfjalli alveg niður að skíðahóteli en í dag nær snjókoman alla leið niður til okkar. Þetta myndi flokkast undir nokkuð blauta slyddu – en er hvítt engu að síður. Bumbubúinn [...]
Filed under: General on September 13th, 2007 | 2 Comments »
Ég er búinn að vera starfandi sem handlangari við múrverk þessa helgina. Nú er búið að múra í kringum dyrnar út úr baðherberginu… þetta er að koma, eitt skref í einu, ein lína í einu. Eva bjó nefnilega til svona “to-do” lista yfir allskonar sem gott væri að koma frá fyrir fæðingu. “Múra hurð á [...]
Filed under: General on September 9th, 2007 | 5 Comments »
Bloggleysið er ekki vegna þess að frumburðurinn hafi litið dagsins ljós, heldur bara vegna leti. Það hefur ýmislegt verið sýslað í Fannagilinu en framkvæmdum miðar hægt vegna þess að það er einfaldlega nóg að gera í vinnunni – aðallega er það þó húsbóndi heimilisins sem hefur staðið í ströngu. Ég hef minnkað aðeins vinnu, fer [...]
Filed under: General on September 7th, 2007 | 1 Comment »
Það er víst löngu orðið tímabært að prenta út einhverjar myndir eftir viðburðaríkt sumar. Ég hef hingað til prentað út hjá Hans Petersen en alltaf verið frekar óánægð með myndirnar, auk þess sem þeir eru langdýrastir. Hefur einhver lesandi góða reynslu af erlendum framköllunarfyrirtækjum? Ég var að spá í að prófa nokkra áður en ég [...]
Filed under: General on September 3rd, 2007 | 4 Comments »