Við höfum staðið í ströngu undanfarna daga og erum búin að koma stórum hluta af okkar hafurtaski í pappakassa. Eftir 3 daga fáum við húsið afhent og þá taka við nokkrir dagar af málningar- og spartslvinnu áður en við flytjum dótið á milli. En í dag var veðrið svo gott að við gátum ekki hugsað [...]
Filed under: General on July 29th, 2007 | 2 Comments »
Við strákarnir (ég, Bjössi og Kalli) fórum, eins og einhverjir muna kannski í góðan mótorhjólatúr í fyrra, þá á okkar ágætu KTM hjólum. Í þeim túr stakk Kalli uppá því að til að gera eitthvað allt annað væri tilvalið að fara hringveginn á vespum, þessum litlu 50cc hjólum sem ruslast inn í landið núna. Það [...]
Filed under: General on July 27th, 2007 | 2 Comments »
Þó svo að lítið hafi gerst á atgangi hefur verið nóg að gera hjá okkur undanfarið. Ágúst Torfi ákvað að aka hringinn um landið á vespu með tveimur félögum sínum. Þrír karlmenn á fertugsaldri sáu sig sem sagt knúna til að eyða þremur dögum í það að keyra á þjóðvegi 1 á vespum… og ekki [...]
Filed under: General on July 22nd, 2007 | 1 Comment »
Nú er komið sumar og sól í heiði… þessvegna er lítið bloggað
Filed under: General on July 19th, 2007 | 1 Comment »
Undanfarnir dagar hafa verið mjög skemmtilegir og hef ég notið þess að vera í fríi, þó svo að eiginmaðurinn hafi ekki alltaf getað slitið sig frá vinnu. Mánudagurinn fór að mestu í það að koma Galtalæk í almennilegt horf, á þriðjudag fórum við í góðan ökutúr um Dettifoss, Hljóðakletta og Ásbyrgi með fjölskyldunni minni og [...]
Filed under: General on July 13th, 2007 | 2 Comments »
Hvað er að gerast hérna – ég orðinn giftur maður. Dettur nú restin af dauðu lúsunum úr höfði mér því þessu átti ég ekki von á. Brúðkaupið og brúðkaupsdagurinn var nákvæmlega eins og best verður á kosið. Allt gekk upp nákvæmlega eins og það átti að gera, rétt veður, rétt fólk á réttum stað og [...]
Filed under: General on July 8th, 2007 | 1 Comment »
Þá nálgast hinn sjöundi sem óð-fluga. Mér reiknast svo til að þann sjöunda verði 30 ár frá því ég ákvað að koma í heiminn og verða þá jafnframt 30 vikur búnar af meðgöngunni sem hefur svolítið farið framhjá mér. Það er ekki amalegt að fá eiginmann í afmælisgjöf, enda eru þeir til margra hluta nytsamlegir [...]
Filed under: General on July 4th, 2007 | 6 Comments »