Sem ég sig hér og bíð eftir fluginu heim þá kemst ég ekki hjá því að huga að þeir sem eru að gera því skóna að færa flugvöllinn eitthvað út í buskann úr Vatnsmýrinni séu meia og minna asnar. Mín tillaga er þessi: Ef vantar svona mikið byggingarland í miðboginni þá er tilvalið að byggja [...]
Filed under: General on April 27th, 2007 | 1 Comment »
Við eyddum sumardeginum fyrsta og helginni í Malmö og Kaupmannahöfn. Þetta voru þrælskemmtilegir dagar með skemmtilegur fólki. Kristbjörg frænka tók vel á móti okkur í Malmö og var með þétta dagskrá fyrir okkur. Á föstudeginum átti Svenni svo afmæli og grillaði fyrir okkur dálítið af svíni og grænmeti – blanda sem klikkar ekki. Sveinn jr [...]
Filed under: General on April 25th, 2007 | 3 Comments »
Nú erum við stödd í Svíþjóð, sunnarlega, held að borgin heiti Malmö. Hér er sól og blíða og Eva er búin að kaupa allskonar varning og er alsæl með það á meðan að ég hef gert meira af því að bíða. Fékk þó á mig buxur í dag og það er alltaf gott að eiga [...]
Filed under: General on April 20th, 2007 | 2 Comments »
Við erum að fara út í heim á morgun, sumardaginn fyrsta, ætlum að lyfta okkur aðeins upp og heimsækja ættingja og vini í landi bauna (annarsvegar) og volvoa (hinsvegar) – ein létt helgarferð fyrir andann. Það verður hinsvegar að viðurkennast að það var ekki auðvelt að fara út á flugvöll áðan, sól og blíða og [...]
Filed under: General on April 18th, 2007 | 2 Comments »
Það dúkkar af og til upp umræða um stafsetningu og málfar í fjölmiðlum. Sennilega er lítill tími fyrir prófarkalestur núorðið og svo þarf að framleiða fréttir á færibandi til að standast samkeppnina við aðra miðla svo að réttritun er e.t.v. ekki forgangsatriði. Þetta hefur gerst hægt og bítandi, svo maður tekur varla eftir þessu og [...]
Filed under: General on April 16th, 2007 | 5 Comments »
Á skalanum einn til tíu er nýja nafnið á Bílanaust og Esso alveg afleitt. N 1 (enn-eitt) klúðrið, enn ein vitleysan. Svo les maður að þetta eigi að standa fyrir Nr. 1. eða eitthvað álíka… eina sem þetta minnir mig á er grínið sem gert var að sýslumönnum fyrir marglöngu þegar bílnúmerin voru svört (*). [...]
Filed under: General on April 16th, 2007 | 3 Comments »
Síðan ég reit síðast hef ég varið talsverðum tíma í það að vera úti að aka. Ók til að mynda rúmlega 1200 km á rúmum sólarhring – það er nefnilega spotti að renna á Þingeyri og til baka, sé verið að fara frá Akureyri. Ef farið er hinsvegar frá Önundarfirði þá er allt annað uppi [...]
Filed under: General on April 12th, 2007 | 2 Comments »
Veðrið hér á Akureyri minnir mann á vorið. Það er að vísu ekki mjög hlýtt en það hreyfir varla vind og er bjart yfir svo mann langar helst að vera úti að brasa í blíðunni. Ágúst Torfi dreif sig út áðan – ætlaði að skella sér upp á Vaðlaheiði á sleðanum og fíflast aðeins. Félagar [...]
Filed under: General on April 8th, 2007 | 1 Comment »
Um daginn brá ég mér af bæ (sleðaferð inn á hálendi), var utan símasambands í nokkra klukkutíma á sunnudegi. Þegar ég datt inn í símasamband aftur á leiðinni norður Eyjafjarðardal heyrðist smá ‘bíbb’ í símanum og inn komu eftirfarandi SMS frá minni heittelskuðu: Nr. 1. “Hringdu. Madur kominn ad skoda fjorhjol.” Nr. 2. “Eg seldi [...]
Filed under: General on April 6th, 2007 | 1 Comment »
.. ekki örugglega að koma páskar ? Nei, bara að því að það er brakandi þurrkur og bændur farnir að smyrja tætlurnar .
Filed under: General on April 4th, 2007 | 3 Comments »
… gersamlega. Maður lenti bara alveg óvart í útlöndum um daginn – og svo skömmu seinna var maður á vélsleða einhversstaðar lengst uppá hálendi í svarta þoku og glampandi sól á víxl. Þarna sannast hið fornkveðna, “betra er að vera lengst í burtu en hvergi”. Annað er að við erum búin að fara í þrítugsafmæli, [...]
Filed under: General on April 2nd, 2007 | No Comments »