Egilsstaðir-city

Við gerðum víðreist um helgina og renndum á Egilsstaði. Kristján bróðir Evu, Brynja og dóttir þeirra Þórhildur Arna búa þar þessa mánuðina og við litum í heimsókn. Derek og Alda litu í heimsókn til þeirra sömu helgina þannig að þetta var svona fjölskylduhittingur, sem er mjög gott. Þórhildur Arna, 3ja mánaða kríli, fékk því óhóflega [...]

Bilaður sími

… og gamall svipur. Síminn minn bilaði um daginn, svosem ekki furða, hann er mikið notaður (ég tala óhóflega mikið í gsm síma vegna vinnu minnar). Ég sleit upp gamla símann minn sem var einhversstaðar lengst ofan í kommóðuskúffu, dustaði af honum rykið og stakk kortinu í. Þennan síma notaði ég síðast þegar ég vann [...]

Drin drin

Að sjálfsögðu er sleðinn kominn í lag, datt í gang um helgina. Búið að reynsluaka Vaðlaheiðina og allt verkar eins og það á að gera… og sumt betur . Algóður Skidoo!

Nýtt dót

Við fengum dálítið af nýju dóti frá Ameríkuhreppi í vikunni sem lyfti okkur aðeins upp úr sleðalægðinni. Það er alltaf gaman að fá nýtt dót og grunar mig að helgin fari annars vegar í skattframtöl og hins vegar í að læra á nýja dótið… og svo vonandi líka tilkeyrslu á vélsleða Nýja dótið samanstendur af [...]

Hrogn dagsins eru partar í vélsleða…

Partarnir eru að koma geri dótið klárt partarnir eru að koma geri dótið klárt set ljóshundinn í samband, tek svo ruslið frá partarnir eru að koma geri dótið klárt … það verður tilkeyrsla um helgina

Það eru engir partar í dag ég get farið heim og slappað af tekið mér sturtu eða farið í bað aaa a a

Úrbræddur

NB! – þetta er færsla fyrir stráka. Laugardaginn 3. mars bræddi ég úr vélsleðanum mínum. Það var ágætis verður, frost en kyrrt, ég setti í gang eins og svo oft áður, ók af stað en eftir u.þ.b. 230m akstur þá sagði 800cc Rotax mótorinn upp störfum. Innan tíðar áttaði Bjössi sig á því að hann [...]

Nokkrar myndir

Ég er búinn að vera eitthvað slappur um helgina – verið með það sem að kallað er velling. Þegar þannig er þá er ágætt að gera eitthvað sem ekki krefst of mikils. Eitt af því er að taka myndir af myndavélinni og setja í tölvuna. Telst ekki vera sérstaklega krefjandi verkefni. Tók nokkrar myndir og [...]

SMS

Núna í morgun er ég búinn að fá 5 SMS með þessum texta: “Flug til Reykjavikur er í athugun kl XX:xx vegna toku á Akureyri” … orðið alveg þreytt og fundurinn byrjar eftir smá stund .

Skíðahelgin mikla

Það var mikið skíðað þessa helgina, enda frábært færi í Hlíðarfjalli og svo voru nokkrir vinir að sunnan í heimsókn sem voru æstir í að reyna skíðagræjurnar sínar. Í gær var snjómugga svo maður sá svo sem ekki mikið og skíðaði meira eftir minni, en í dag var frábært veður og voru þá farnar nokkrar [...]

Sterkur

Rakst á þetta skilti á förnum vegi fyrir nokkru síðan: … í stafsetningu.

Fyrir stelpurnar

Hér hefur mikið verið skrifað um bíla, mótorhjól og vélsleða svo það er kominn tími á óvélknúna færslu sem höfðar þá kannski til annarra lesenda.. færslu um Þórhildi bróðurdóttur mína. Hún stækkar nú hratt eins og smábarna er von og vísa, er farin að brosa af og til og hafa sterkari skoðanir á hlutum… sem [...]

eXTReMe Tracker