iPod

Helstu niðurstöður sunnudagsins: Það eru alls ekkert verri kökur í skírnar en fermingarveislum Það er seint ofmetið að hafa iPod í vasanum ef ekið er norður heiðar einn í útvarpslausum bíl um nótt að vetrarlagi. P.s. það fór þá loks svo að ég eignaðist gislaved hjólbarða, ótrúlegt miðað við hvað á undan er gengið!

Þórhildur Arna heitir stelpan

Helgin var nokkuð viðburðarík. Ég eyddi bróðurparti laugardagsins í að klára peysu sem ég gaf svo guðdóttur minni í skírnargjöf, gaf mér nú samt tíma til að horfa á leikinn gegn Slóvenum. Á sunnudagsmorgninum leit ég til Bjargeyjar í lúxus brunch og hitti þar nokkra góða vini og tvær súperhressar 1 1/2 árs stelpur sem [...]

Síðasti eigandi

Það er eitthvað trend í gangi með að bílar vilja daga uppi hjá mér, ég er þessi síðasti eigandi að sjálfrennireiðum. Það var ekki fyrir svo löngu að við lögðum við Trónunni okkar góðu (sumarið 2004) – hún situr ennþá nokkuð spök og bíður þess sem koma skal.  Það stefnir í að ég hafi verði [...]

HM

Ætla ekki allir að horfa á leikinn á eftir? Ég eins og fleiri horfði á Frakkaleikinn og fannst hann gríðarlega góður. Meira að segja Torfi hafði gaman af og ekki er hann nú mikið fyrir boltaíþróttirnar. En ég ætla að vera klár fyrir framan settið kl 16:30 og vonandi rúlla strákarnir þessum Túnisum upp.

Fimmti gír

Það er svakalega mikið að gera í vinnunni þessar vikurnar. Það er eins og ofurkraftur grípi kúnnana eftir nokkra daga frí og þeir vilja allir ljúka verkefnum sem fyrst – á ekki von á að þeir strengi vinnutengd áramótaheit! Það er því alltaf mest að gera í upphafi árs og svo aftur í september. Fram [...]

Á helginni

… eins og sagt er fyrir vestan. Við gerðum allskonar um helgina, það var farið á leiktækjadag (vélsleðast, snjóbílast, mótorhjólast… ) þar sem Kroppinbakur fór alveg á kostum – en bara ekki mjög lengi. Græjan öxulbrotnaði og snérist bara í hringi . Þá er gott að eiga vélsleða til að grípa til… enda eru snóbílar [...]

Heimasíður

Nú getur maður fylgst með svo til öllum vinum og vandamönnum á netinu – jólakortin og jólabréfin eru orðin “old news” í lok árs, þó alltaf sé reyndar gaman að fá myndir eða heimagerð kort. Torfi var því afar hneykslaður þegar hann komst að því daginn sem ég byrjaði hjá Nobex að fyrirtæki í upplýsingatækni [...]

Hvenær er komið nóg ?

Við Bjössi erum búnir að vera að dunda okkur aðeins við Argo-inn okkar undanfarið (Argo-inn er semsagt hinn svokallaði kroppinbakur).  Um daginn komst ég ekki hjá því að vitna aðeins í hann Limahl og lagið hans góða “Neverending story” – það var þegar keðjan slitnaði og það var komin bensínstífla aftur. Við vorum að hugleiða [...]

Ja hérna

Ég var búinn að einsetja mér að vera duglegri að blogga á þessu ári en því síðasta en svo byrjar árið (næstum) á viku hléi – ekkert skrifað í viku og almennur doði. Nú ætla ég að einsetja mér þetta að nýju – vera duglegri. Það er hægt að sjá hvað maður er duglegur að [...]

Volvo

…keypti Volvo númer 1,2… 5 á sunndaginn. Er ekki annars allt eðlilegt við það að eiga 5 stk. Volvo ? p.s. þessi “nýjasti” heitir Wolfgang, er með innbyggðum ruggustól og þremur hurðarhúnum. 

Grímuball

Árlegt grímuball 1999/2000 árgangsins í verkfræði er núna á morgun.  Á ballinu í fyrra vorum við, ásamt nokkrum öðrum, skipuð í “ballnefndina” fyrir árið í ár.  Þar sem fæstir úr þessum blessaða hóp hafa haft rænu á því að flytja búferlum norður í sæluna eins og við þá erum við nauðbeygð til að halda í [...]

Snjóbíll er fæddur

Við Björninn settum beltin undir Kroppinbak í gærkvöldi.  Úffídúff – hafi hann verið vígalegur áður þá er gersamlega allt að gerast núna – allt.  Klikkaði á taka mynd í gærkvöldi en redda því bráðlega. Orð dagsins er “ofur”.

eXTReMe Tracker