Það eru góðir dagar núna, búin að vera einmuna blíða og gott hjólaveður, þó ég hafi nú að vísu ekki farið nema 2 stutta túra frá því að “Hjólatúr lífsins” lauk, en þeimun betri bara í staðinn.  Af einhverjum undarlegum ástæðum virðist eins og þessi hjólatúr (lífsins) hafi vakið ótrúlega mikla athygli allt í einu, [...]

Myndir úr hjólaferð hjólaferðanna

Já já - allt að gerast. Viku eftir brottför í hjólaferðina góðu koma myndirnar…. nánari lýsing á ferðinni sjálfri er í færslu aðeins neðar á síðunni.  En myndirnar, þær eru HÉR Flottir ?

Aðalstrætið

Húsið okkar er komið í sölu

Hjólaferð lífsins

Nú er það vinsæl setning að segja að eitthvað sé “dauðans” – samanber “partí dauðans”, “jeppi dauðans” og “sláttuorf dauðans”.  Þó það væri eftilvill freistandi að kalla hjólatúrinn sem ég, Bjössi og Kalli fórum í um helgina “hjólatúr dauðans” þá kýs ég frekar að kalla hann hjólatúr lífsins.  Þvílík og önnur eins skemmtan – eins [...]

Langir dagar… fyrir langa Manga

Undanfarnir dagar hafa einkennst af snúningum og akstri. Á föstudagsmorgun, eldnemma, keyrði ég Bjössa, Kalla og Torfa út að Reykjanesvita og skildi þá þar eftir með mótorhjólin sín og nokkur mars-stykki. Brunaði svo aftur í bæinn og mætti í vinnuna á meðan þeir félagar dóluðu á hjólunum sínum. Um kvöldið keyrði ég svo norður með [...]

Flottir

Rakst á þessa snillinga við Lindu húsið um daginn. Ef þetta er æskan sem erfir landið höfum við engu að kvíða – snillingar þetta eru.

Helgin

Uss – hér hafa síðuhaldarar ekki verið að standa sig, vika á milli færslna. Helgin var góð, ókum austur á land og hittum það Hildi og Óla. Útilega í Skriðdal, ekið upp að Kárahnjúkum og gengið út og suður, m.a. um Kringilsárrana. Svo aftur niður Jökuldal og gist í Jökulsárhlíð. Enn ekið en nú norður, [...]

Heiddi

Eftir dálitla umhugsun hef ég ákveðið að skrifa nokkur orð um Heiðar Jóhannsson sem lést um daginn – allt of ungur. Ég þekkti Heidda lítið, en þekkti hinsvegar talsvert mikið til hans eins og flestir hér norðan heiða. Ég náði að fara með honum í eina mótorhjólaferð, 28.06.04, og þegar maður er búinn að fara [...]

Ræktin

Ég er farin að fara í ræktina á hverjum morgni enda ekki seinna vænna þegar aldurinn færist svona hratt yfir Svo er ég líka kominn með afbragðs einkaþjálfara svo það er auðvelt að sprikkla smá á morgnana. Hún er reyndar mjög líklega elsti einkaþjálfarinn á landinu og er jafnframt tilvonandi tengdamóðir mín Kemur á hverjum [...]

Afmæli

Hipp hipp húrra Hún Eva mín á afmæli í dag, 07.07.06, hamingjuóskir alveg hægri vinstri!

Með strengi og stírur

Í gær var farið í algóða hjólaferð, fórum á 13 hjólum, ekin Gæsavatnaleið (Mývó, Kistufell, Askja, Herðubreiðarlindir, Hrossaborg, Mývó). Eknir voru þetta 300+ kílómetrar og allir komu sælir en mjög þreyttir heim . Takk fyrir það. … og já, við skelltum okkur líka til Kópaskers á sunnudaginn – alltaf gamana að koma þangað, og svo [...]

eXTReMe Tracker