Hann á…

… afmæl’ í dag, hann á afmæl’ í dag. Hann á afmæl’, hann Ágúst Torfi. Hann á afmæl’ í dag. Húrra! Verst að geta ekki smellt einum á kinnina á kallinum í dag en það bíður betri tíma. Ég var þó búin að græja m.a. góða skóflu í afmælisgjöf handa honum, svo hann fengi a.m.k. [...]

Þú veist að þú ert á góðu hóteli þegar…

… “herbergið” er yfir 100 fm. … það eru fjögur aðskilin rými í “herberginu”. … það er bæði sjónvarp í stofunni og svefnherberginu. … þernan kemur tvisvar á dag til að græja herbergið – og býður manni svo súkkulaði. … það eru 5 dúnkoddar í hvoru rúmi. … það er 30 stiga hiti úti en [...]

St. Kitts

Það er land langt langt í burtu – svo langt í burtu að enginn kemst þangað nema fuglinn fljúgandi (og skip og eitthvað fleira sem þið þekkið öll). Í þessu landi, þessu eylandi erum við nú stödd. Fengum í “kaupbæti” 19 tíma stopp á Puerto Rico (vonum bara að það endurtaki sig ekki á heimleiðinni). [...]

Fost i Puerto Rico

Allt a hlidinni i Karabiska nuna – fluginu til St. Kitts aflyst og vid fost i P.R. vegna thess ad eitthvad eldfjall akvad ad fara ad gjosa og thad er ekkert skyggni til ad fluga. Erum buin ad vera taepan solarhring nuna fost – enginn farangur og allt i volli . Thetta verdur samt alveg [...]

..en batnar bráðum

Einhvern veginn er það þannig að maður er á endalausum þönum rétt fyrir frí – við sjálfsagt slökum ekki á fyrr en við erum komin til Keflavíkur. Munum að vitanlega ekki skilja vinnuna eftir heima – tveir laptoppar með í för og allar græjur fyrir nettengingu, gemsar og snúrur. Eftir mikil hlaup í gær, gúffaði [...]

Á enda

Þetta eru nú meiri dagarnir – og næturnar. Það klikkar aldrei að erillinn er aldrei meiri en akkúrat þegar maður ætlar að bregða sér frá í nokkra daga, það allavega klikkar ekki núna . Helgin síðasta var góð, ég er ekki frá því að maður hafi eitthvað svitnað enda um umtalsverðar framkvæmdir að ræða. Eva [...]

… en fyrst Akureyri

Tilhlökkunin er töluverð – ein helgi heima eftir alltof langa fjarveru. Það verður hins vegar alveg nóg að gera þessa helgi. Ég þarf að koma gulrótafræjunum niður og koma sumarblómum og kryddjurtum í potta…grænu puttarnir verða sem sagt dregnir fram. Svo á ég eftir að panta bílaleigubíl og siglingar fyrir eyjaheimsóknina okkar og svo auðvitað [...]

… og bráðum Karabískahafið

Það er tómt flandur á okkur þessa dagana og nokkuð ljóst að það verður ljúft að eyða helginni heima hjá sér til tilbreytingar. Í næstu viku eigum við svo flug til eyju sem heitir St.Kitts og er í Karabískahafinu. Þegar við bókuðum ferðina vissum við svo sem ekki alveg hvað myndum gera á eyju í [...]

Bretland og Brussel

Nú er maður kominn uppá hótelherbergi í Brussel eftir ágætlega heppnaða helgi af húsgagnaflutningum einhversstaðar sunnarlega á Bretlandseyjum. Eva fór heim áðan með Flugleiðavél en ég hélt suður í átt að enda***** Evrópu með rellu allt annarrar gerðar. Á leiðinni frá flugvellinum á hótelið áðan hefði ég getar svarið að ég væri lentur mitt inn [...]

úff í dúff

Það vantar ekki atganginn núna – búið að vera nóg að gera undanfarna daga. Helgin var undirlögð í skemmtan, Óli, Hildur og Þórdís í heimsókn, 250 km eknir á vélsleða og farið á skíði inn á milli… Vikan hefur svo verið undirlögð í vinnu og voða á víxl – gott ef við Bjössi kláruðum ekki [...]

eXTReMe Tracker