Land drauma vorra

Kláraði að lesa Draumaland – Sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð – í gærkvöldi. Margt sem í bókinni stendur er eitthvað sem marga hefur grunað í mörg ár. Það sem Andri gerir hinsvegar er að setja staðreyndirnar skipulega fram, setja hluti í tölulegt samhengi og svo framvegis – og kryddar svo alltsaman með líflegum texta þannig að [...]

814 kíl

… er vegalengdin sem ég ók í gær eftir íslenskum þjóðvegum.

Páskar á enda

Mikið lifandis skelfingar ósköp voru þetta nú góðir páskar. Ég er alveg búinn að komast að því á páskar eru alls ekki verri en jólin. Meira frí, jafn góður matur, betra veður, meiri snjór… ekkert stress – algott . Án þess að bera nokkuð saman jólin og páskana frekar þá er allavega alveg ljóst að [...]

Myndir

Loksins er myndasíðan að komast í lag – hefur verið ólag á henni frá því að elstu menn muna. Nú er hún loksins farin að virka u.þ.b. eins og hún á að gera, allavega nóg til þess að hægt er að skoða myndir . Af því tilefni eru komnar inn nokkrar myndir frá Kúbuferðinni – [...]

Aldrei fór ég vestur…

Ísfirðingar halda hina frægu tónlistarhátið “Aldrei fór ég suður” um páskana og er þar vitnað í dægurlagatexta sjálfs kongsins. Ég hinsvegar syng: Aldrei fór ég vestur, allaf óhæft til flugs tíma eftir tíma því ferstað var uns klukkan sló fimmtán og fimm Já, frestun á flugi til Ísafjarðar á fimmtudaginn var alger sem endaði náttúrlega [...]

Seinkun

Sit á Reykjavíkurflugvelli og er á leiðinni til Ísafjarðar með flugi. Var að komast að því að ég hef aldrei áður, svo ég muni, flogið til Ísafjarðar – oft komið þangað en alltaf akandi. Maður innritar sig og svo gerist það sem gerist víst alltaf þegar fljúga á til Ísafjarðar, Þorsteinn þulur kemur í kallkerfið [...]

Rofin

þ.e. þögnin. Við höfum verið allt annað en dugleg við að rita eitthvað á atganginn að undanförnu. Það hefur ýmislegt valdið, fannir og annir . Núna á hinsvegar að bæta eitthvað úr þessu. Það hefur ýmislegt drifið á daga okkar að unanförnu, við brugðum okkur til Kúbu, tókum myndir og keyptum vindla, höfum verið að [...]

Þolinmæði

Það verður víst smá bið á birtingu mynda þar sem að myndasíðan liggur niðri í augnablikinu. Við reynum að koma því í lag í kvöld. Það hefur svo tekið á þolinmæðina að fylgjast með fasteignamarkaðnum hér norðan heiða. Það er ekki margt sem kemur inn þessa dagana og fátt sem við höfum séð ástæðu til [...]

eXTReMe Tracker