Kemur…

Ég fór í eitthvað sem kallað er “bandí”. Bandí (er bandí kannski frekar bandý ?) er semsagt íþrótt sem er einhversstaðar mitt á milli einskis og íshokkís. Þetta er nokkuð sem gæti kallast “elendug” íþrótt. Nú vill þannig til að ég hef lítið gert af því um ævina að leika íþróttir, var ekki í neinum [...]

Er ekki tími til kominn…

… að tengja. 6 dagar milli skrifa er nokkuð sem er ekki mjög algengt á atganginum. Við höfum bæði verið svolítið vant við látin síðustu daga – ég brá mér með suður í Leifsstöð þaðan sem ég fór svo enn lengra í burtu frá flestu sem ég þekki. Nú er maður hinsvegar kominn heim og [...]

Flutningar og helgi

Þá erum við flutt, formlega, norður. Allt dótið okkar komið inn í íbúðina og búið að breyta flestum mikilvægum heimilisföngum . Fyrst helgin okkar fyrir norðan – þ.e. eftir að við fluttum – var algóð. Skíði og bretti í frábæru veðri og færi í Hlíðarfjalli (logn, sól og púður) á laugardag og svo sleðaferð á [...]

Pakkar

Fór í gær og tók utan af alveg hægri vinstri – þetta er næstumþvíhérumbilalvegekki eins og jólin, margir stórir pakkar til að taka utan af (sá partur er eins og jólin) en svo kemur alls ekkert á óvart hvað er inni þeim (ekki eins og jólin) => næstum jól. Svo er byrjað að hríða, var [...]

Allt í gám

Allt sem við eigum (rétt tæplega) var sett í gám um helgina og er í þessum rituðum orðum á leiðinni uppá Öxnadalsheiði. Það gekk mikið á við Víðihvamminn en margar hendur vinna létt verk… stóla bara á að fá nokkrar hendur lánaðar hérna fyrir norðan líka – píanóið skal inn . Eva tók nokkrar svipmyndir: [...]

Útflutningur

Við Torfi héldum víst aldrei innflutningspartý – áttum alltaf eftir að koma okkur betur fyrir og komum því svo aldrei í verk. Þannig að í gærkvöldi hélt ég smá útflutningsboð – bauð nokkrum skyldmennum í kaffi, sumum höfðum við aldrei boðið heim og því um það bil síðustu forvöð að bjóða liðinu. Þetta tókst alltsaman [...]

Tilvalið

Nú væri tilvalið að setja inn eins og eina færslu, skrifa eitthvað gáfulegt um daginn og veginn, jafnvel svívirða einhvern einstakling eða þjóðfélagshóp. Það er hinsvegar ekki á allt kosið…

Til hamingju Ísland

Ég held með Silvíu Nótt. Hún er lang flottust og á alveg endilega að fara sem okkar fulltrúi í Júróvision – þannig er það bara. Þetta er náttúrulega lang besti textinn, skiluru: Til hamingju Ísland með að ég fæddist hér Ég er Silvía Nótt og þið haldið með mér Eurovision nation fær sko flog er [...]

Fyrsta, annað, þriðja…

Við undirrituðum kauptilboð í Víðihvamminn seint í gær. Erum bara nokkuð sátt við verðið og tilhögun og vonum bara að kaupsamningur verði undirritaður í næstu viku og allt gangi svo skv. áætlun eftir það. Maður getur samt ekki verið alveg rólegur fyrr en allar greiðslur hafa borist. Ég bókaði svo far norður á morgun og [...]

Þetta helst…

… í fréttum. Við Björn álpuðumst á opinn borgarafund um álver í Eyjafirði í gærkvöldi, það endaði náttúrlega með því að við vorum bara í nærmynd á fréttum ruv í gærkvöldi, sem er alltaf alveg ljómandi viðeigandi. Hefðum samt frekar viljað komast í fréttirnar fyrir frábæran árangur í kerrusmíðum eða afburða akstursþol á mótorhjólum heldur [...]

eXTReMe Tracker