Skoffín

… það að skoffín sé eitthvað sem kemur úr hanaeggi er bara bull – þessháttar skoffín hefur ekki nokkur maður heyrt um. Hér er um að ræða villu í Trivial, það er ekkert flóknara en það! Skoffín er gott orð og má notast við ótrúlegustu tækifæri – má nota samhliða öðru orði sem ég er [...]

Síðustu dagarnir…

Nú fer vinnunni hjá Samskipum að ljúka – ég hef mánudag og þriðjudag til að ganga frá verkefnum og koma þeim yfir á aðra. Ég er því ekki sérlega vinsæl þessa dagana… skil menn eftir í hálfdjúpum skít. Svo er kveðjukaffi á eftir, veit ekki hvort það er til að kveðja mig eða ég að [...]

Halló Halló Halló…

… á ekki að hleypa inn? Það var sagt að það væri show. Svo syngja Stuðmenn – og svona leið okkur um helgina. Við vorum semsagt með opið hús og sýndum gestum og gangandi íbúðina okkar á sunnudaginn – straumurinn var slíkur að það mætti halda að við værum að bjóða uppá eitthvað “freakshow”. Svo [...]

Hrútafjörður

Ók norður í gærkvöldi. Það er eitthvað við það að aka um Ísland á vetrarkvöldi, myrkur, snjóföl á vegi – country í útvarpinu – stoppa við Brú og pissa skáhalt undan vindi. Mér koma í hug orð Þráins Bertelssonar sem Sigurður Sigurjónsson flutti svo eftirminnilega: I love it !! Ísland – best í heimi.

Beinlausir bitar

Annasöm helgi á enda. Við vorum með það sem að kallað er “opið hús” um helgina – það var semsagt auglýst að íbúðin væri opin þeim sem áhuga hefðu á kaupum. Það kom slatti af fólki og nú er bara að sjá hvort það ber einhvern árangur, hvort einhver bíður í . Ég brá mér [...]

One way ticket…

.. to the moon! Ég er mikill Dilbert aðdáandi, finnst hann tóm snilld. Í dag ætla ég að kynna eina af mínum uppáhalds Dilbert sögum. Kannski er það vegna þess að ég er verkfræðingur, ekki gott að segja, en sagan er góð. Þegar sagan hefst er Dilbert búinn að hanna bás (cubicle) sem er búinn [...]

Verst

Það er fleira Puma en Puma skór og treyjur. Já, það er nefnilega líka Puma fjórhjól. Puma fjórhjól eru framleidd í Kína, austast í því ríki, og eru jafnan talin vera kínversk. Það má til sannsvegar færa að þau séu kínversk en hitt er líka alveg deginum ljósara að þau eru kín-verst (ég bið lesendur [...]

Ráðið í ráðin

Þegar ég hlusta á dægurtónlist þá hlusta ég jafnvel enn meira á textann heldur en tónlistina sjálfa. Hef einhvern óútskýrðan áhuga á dægurlagatextum, eins misjafnir af gæðum og þeir nú eru. Þessa dagana hljómar ótt og títt í bíl mínum texti með gráa gæðingnum sem er á þessa leið: Said, if you’re gonna play the [...]

Við feðginin

Leiðin áfram er víst ekki alltaf greið og ennþá síður beinn og breiður vegur. Ég og pabbi höfum bæði verið í atvinnuleit undanfarið – hann sagði upp í nóvember án þess að vita hvað tæki við og ég sagði svo upp í desember vegna búferlaflutninga okkar Torfa. Við vorum þá komin með nóg af því [...]

Klárt

Þetta eru nú meiri rólegheitin á atganginum núna – stendur eiginlega ekki undir nafni. Undanfarið hefur allt verið einhvernveginn upptekið – maður er í vinnunni lengur en góðu hófi gegnir og svo að brasa eitthvað hingað og þangað þess utan. Eitt af því sem brasað hefur verið er marg-um-rædd kerrusmíði okkar Bjössa. Fyrstu tveimur áföngunum [...]

Ok ok ok ok

… Leo Getz. Menn eru bara sakaðir um bloggleti og ég veit ekki hvað og hvað. Eva summeraði þetta ágætlega í svari við síðustu færslu: Já, mikil bloggleti. Það fer reyndar lítið fyrir letinni á öðrum vígstöðvum því við fórum í bústað síðustu helgi, fórum í sleðaferð, svo hefur verið nóg að gera við að [...]

Úffídúffídó

Það er margt í mörgu. Nokkrar staðreyndir úr daglega lífinu. Við Bjössi erum búnir að vera að smíða kerrur (3 stykki) á kvöldin að undanförnu, fóru tvær kerrur í zinkhúðun í gær og sú síðasta er langt komin. Við vorum nú búnir að tala um það í fyrra (þegar við smíðuðum einmitt líka 3 kerrur) [...]

eXTReMe Tracker