Loksins er vinnuvikan alveg að verða búin. Ég er búin að vera á frekar langdregnu námskeiði alla vikuna – þegar svo við það bætist að maður skríður undan heitri dúnsæng á morgnana og það eina sem mætir manni er frostið og rúður sem þarf að skafa þá er erfitt að finna ástæðu til að fara [...]
Filed under: General on October 28th, 2005 | 2 Comments »
Eftir langa mæðu, eftir tímabil fullt af tilgangslausum myndbirtingum og almennu bulli, kemur færsla sem inniheldur eitthvað. Við erum að fara að flytja norður. Bara slíta okkur upp úr Kópavogsdalnum og halda norður í átt að heimskautsbaug (ekki alla leið samt, förum bara til Akureyrar – ekki Grímseyjar). Okkur vantar hús fyrir norðan, einbýlishús – [...]
Filed under: General on October 26th, 2005 | 8 Comments »
Ekki nennir síðuhaldari neitt frekar að skrifa í dag svo hér kemur önnur – nú af undirrituðum í fíatbifreið af 600 gerð að talið er: Lifið heil – á morgun verður kannski alvöru færsla, hver veit .
Filed under: General on October 25th, 2005 | 3 Comments »
… ég semsagt nennti ekki að skrifa neitt og setti þetta inn í staðinn. Jack er líka lang flottastur og því um að gera .
Filed under: General on October 24th, 2005 | 7 Comments »
Norður skal haldið á fundi og fíflarí – ég hef meira að segja lúmskan grun um að ofan á það alltsaman bætist einhver járnsmíði og ef vel er að gáð má gera ráð fyrir slökun inn á milli, samt bara í smá stund. Við erum ekki enn búin að prófa pottinn hjá m&p og því [...]
Filed under: General on October 21st, 2005 | 3 Comments »
Við stefnum á norðurferð um næstu helgi en nú á að brydda upp á nýjung og fljúga norður í stað þess að keyra. Það eru í raun engin skynsamleg rök fyrir þessari ákvörðun önnur en þau að við nennum ekki að keyra – erum búin að fá alveg nóg af því að vinna fram á [...]
Filed under: General on October 18th, 2005 | 5 Comments »
Ég hef nú áður skrifað um takmarkaða hrifningu mína á “Lord of the rings”. En í dag rakst ég á tilvitnun í Conan O’Brien sem mér finnst vera ekkert minna en snilld: “Producers are working on a Broadway musical version of ‘The Lord of the Rings.’ Experts say now there will finally be a musical [...]
Filed under: General on October 17th, 2005 | 3 Comments »
Vikan hefur liðið ansi hratt enda verið nóg að gera hjá okkur báðum í vinnunni. Svo eftir að heim er komið sitjum við bæði með lappana og höldum áfram að pikka, þar til að við lognumst út af í sófanum fyrir framan sjónvarpið. Svo rankar annað hvort okkar við sér uppúr miðnætti og dregur hitt [...]
Filed under: General on October 14th, 2005 | 1 Comment »
Detta mér nú allar dauðar lýs úr höfði. Maður er bara á haus og þegar maður er á haus þá detta allar dauðu lýsnar – þannig er það nú bara. Ég er ekki frá því að gsm síminn minn sé bara farinn að hitna, hann er búinn að hringja svo oft í morgun… og allir [...]
Filed under: General on October 14th, 2005 | 1 Comment »
… er líðin frá því að einhverjum í fyrirtækinu sem ég vinn hjá datt í hug að gefa öllum starfsmönnum dúnúlpu frá þeim í Cintamani í jólagjöf. Ég fékk svarta úlpu í XL, með hettu og loðkraga – hún passar, ermar eru af réttri lengd og hún er hæfilega víð. … það eru tæpir tveir [...]
Filed under: General on October 12th, 2005 | 9 Comments »
Ég er að verða gul af gulróta-áti. Ég komst að því að maður uppsker eins og maður sáir… í það minnsta ef maður sáir snemma í maí og hefur gulræturnar svo undir plasti í tvo mánuði. Ég hef svo verið að taka upp síðustu tvo mánuðina, núna síðast í morgun og held að ég geti [...]
Filed under: General on October 11th, 2005 | 3 Comments »
Undirritaður hefur lúmskan grun um að köttur hafa losað þvag í skó hans er þeir voru geymdir utandyra fyrir ekki svo margt löngu. Veldur þetta óþef sem hefur þó dregið úr eftir umtalsverðan skóþvott um nýliðna helgi. Mælir undirritaður með því að kattarhlandi sé haldið frá skóm með öllum tiltækum ráðum.
Filed under: General on October 10th, 2005 | 3 Comments »