Ég er orðinn svo ruglaður að ég veit ekkert hvað snýr fram eða aftur á þessum degi – það er bara allt í yfirsnúning og látum….. … en það eru miðar á DURAN DURAN undir segli á ísskápnum – þ.a.l. verður kvöldið algott .
Filed under: General on June 30th, 2005 | 7 Comments »
Sumir dagar eru bara ekki að gera sig og undanfarnir dagar hafa verið heldur daprir. Lítið gengið í vinnunni og verkefnin hjakka endalaust í sömu sporunum, og svo þegar maður kemur heim þá situr Torfi sem fastast við hönnun á svölum/palli sem hann ætlar að smíða fyrir norðan í næstu viku og engin leið að [...]
Filed under: General on June 28th, 2005 | 6 Comments »
Það var ýmislegt sem gekk á um helgina – eitt af því var að hann vinur okkar allra (BMH) var steggjaður, eftirá. Já, Baldurinn var gripinn í grín þó giftur sé – hann gifti sig svo óvænt að menn gátu engan veginn brugðist við. Það er nú þannig þegar menn grípa í rass (samanber seint [...]
Filed under: General on June 27th, 2005 | 2 Comments »
Ég skrifði hérna þessa fínustu færslu og komst síðan að því að hún var líkleg öll byggð á misskilningi og lélegu minni undirritaðs… Breytir ekki því að lokaspurningin í færslunni var þessi: Hvað ætli ein kind á fæti kosti ? … allt hitt var bull og hefur því verið eytt, þakka gott hljóð.
Filed under: General on June 24th, 2005 | 3 Comments »
Uppúr 6 tók gesti að “streyma” að Víðihvamminum þar sem sólin skein í allt gærkvöld. Maturinn var reiddur fram á svipstundu – ekki kannski allt tilbúið á sama tíma en það er kannski ekki svo nauið . Partýið var svo ýmist inni þar sem gítarleikur og söngur var alsráðandi eða úti þar sem ungviðið hélt [...]
Filed under: General on June 23rd, 2005 | 2 Comments »
Nú er maður að gíra sig í framkvæmd sumarsins – brestur á fyrstu vikuna í júlí. Þá verður frí í vinnunni og haldið norður í það verkefni að smíða eins og einar svalir utan á húsið heima. Ég fékk það verkefni að hanna svalirnar (þetta er gróflega sólpallur utan á húsið – en ólíkt öðrum [...]
Filed under: General on June 22nd, 2005 | 5 Comments »
Helginni atarna var eytt í bænum – hæ hó og 17. júní – slegið um sig, garðinn og tvær flugur í sama högginu. … en nú er það búið – ný vinnuvika með splúnkunýju veðri brostin á.
Filed under: General on June 20th, 2005 | No Comments »
Þetta byrjaði allt í gærmorgun – við töluðum okkur saman þrír vinnufélagar um að fara í hjólatúr einn góðan og úr varð það sem kalla má “hjólaferð gærkvöldsins”. KTM-ið var semsagt ekki einhjóla í gær, Kvörn og Jammi fengu að fljóta með – þrír fræknir óku útum allt, hring í kringum Hengil og ég veit [...]
Filed under: General on June 16th, 2005 | 6 Comments »
.. þó ekki fram af sér. Við ákváðum eftir stutta sem enga umhugsun að hætta snemma í vinnunni í gær og slíta okkur á fjöll. Gekk framar vonum og vorum við búin að labba Hengilinn þveran og endilangan, um Innstadal og skörð ýmiskonar áður en klukkan varð mjög margt. Sérdeilis ekki alveg ómöguleg – annað [...]
Filed under: General on June 14th, 2005 | 3 Comments »
… svo ekki sé meira sagt. Okkur var boðið til skírnarveislu um helgina, allt gott og blessað með það… en svo bara áður en maður gat nokkuð áttað sig var brostið á brúðkaup. Klerkurinn tók sig bara til og pússaði saman skötuhjúin öllum (í það minnsta öllum nema allra nánustu) gersamlega að óvörum . Þetta [...]
Filed under: General on June 13th, 2005 | 8 Comments »
… og allt í einu komin helgi. bæjó í bili.
Filed under: General on June 10th, 2005 | No Comments »
… var svona hjá undirrituðum (meðan Eva fór mikinn á golfvellinum): … og kvöldið þar áður var ekki síðra – Ásbjörn tók á því í Þjóðleikhúsinu okkur og mörgum fleirum til ómældrar ánægju. 12 stig.
Filed under: General on June 9th, 2005 | 3 Comments »