Endurvinnslan á fullu

… eins og ryksugan forðum. Ég tók mig loksins til í gærkvöldi og græjaði nokkrar af gömlu myndasíðunum þannig að þær passi inn í nýja umhverfið sem atgangurinn vinnur í núna – bætti inn link inn á gamlar myndasíður hér til hliðar . (þetta eru elstu myndasíðurnar… ferðasíður og ekki eins gamlar myndasíður koma síðar). [...]

Búið í bili

Páskafríið búið þetta árið – og var með allra besta móti. Það var farið í matarboð alveg hægri vinstri, farið í hjólaferð á tví- og fjórhjólum og svo í algóða vélsleðaferð þegar í ljós kom að tvíhjólin voru bara alls ekki að drífa nokkurn skapaðan hlut í krapanum . Upphaflega pældum við aðeins í því [...]

Komin norður

… í sæluna. Norðurferðin gekk að vonum vel – það var vegleg útgerðin á okkur að þessu sinni, á pickup með mótorhjól á pallinum og eitt stykki Suzuki Sidekick í eftirdragi – á seinna hundraðinu upp Bólstaðarhlíðarbrekkuna . Núna er langur föstudagur, sól og blíða við Eyjafjörðinn og við á leiðinni út að njóta.

Viðrinislegur

Endingin -legur finnst mér skemmtileg, sbr. t.d. kúlulegur, keflalegur, hommalegur og asnalegur. Endingin er til margra hluta nytsamleg og svo er einmitt nú – ég ætla að nota hana í færslunni hér að neðan. … nei annars, ég er hættur við. Miklu betra að fara bara í páskafrí

Hvað heldur þú maður

Það er bara að bresta á með páskum og tilheyrandi fríi og fíflagangi. Yfir þessu gleðst fólk um allan bæ, húsráðendur baka bökur, kaupa páskaegg og afturlappir af sauðfé í Bónusi eða Krónunni og undirbúa þá gleði sem í vændum er. Sama er upp á teningnum hjá okkur – tja nema við kaupum hvorki né [...]

Að gefa tóninn

… hringitóninn. Ég, eins og aðrir, hef prófað mismunandi hringitóna í símanum mínum. Eftir að ég fékk nýja fína símann minn, sem getur haft .mp3 hringingar, þá hef ég lengst af verið með forláta hringingu af stúlku að syngja. Nema hvað, útí Frakklandi núna um daginn þá gerðu Mundi og Svanhildur mér þann greiða að [...]

Gleði, gleði…

Það var mikil kátína í höllinn þegar Torfi birtist loksins með nýtt mótorhjól undir rassinum, ég veit alltof mikið um þetta hjól, hvað það heitir, árgerð, fyrri eigendur, og jú það er á ónýtum dekkjum. Ég hugsa að ég hafi verið ekkert minna hamingjusöm með þessi kaup en Torfi sjálfur, þessi stund kemst örugglega í [...]

Svipmyndir #2

Búmmsjaka-búmm-búmm-búmm…. p.s. hver veit svo nema það komi “alvöru” færsla bráðum – með texta og svona

Svipmyndir

Í dag er föstudagur – síðasti þáttúrinn í Idol, sól og blíða úti og almenn hamingja ríkjandi út um allan bæ. Í tilefni af þessum ljómandi góða degi ætla ég að setja inn nokkrar svipmyndir (svipmyndirnar eru teknar á símann minn) úr Frakklandsförinni. … framhald síðar…

Gott að eiga góða að

Frakklandsferðin var stórgóð og stóðst allar væntingar. Við brunuðum niður þó nokkrar alpabrekkur, ég dreypti á frönsku rauðvíni og Torfi smakkaði coke-ið, áttum góðar stundir með vinum og brunuðum um á allt á wolfgang sem lét vel að stjórn Munda. Það kom sér svo sérstaklega vel að eiga góða að þegar kom að heimferðinni. Við [...]

Löngu komin heim….

Nú er tími til kominn að atgangurinn vakni aftur eftir stopular færslur undanfarna daga – það beið okkar svo ljómandi mikið verk þegar við skröltum heim að dagbókarskrif lentu á hakanum. Heimferðin frá Frans gekk nú ekki allskostar áfallalaust. Þetta byrjaði eiginlega alltsaman á sunnudagskvöldið með því að það snjóaði slatta í Grenoble – ekkert [...]

Næstum því hérumbil alveg búið

Þá sér fyrir endann á vetrarfríinu okkar að þessu sinni – lestin til Parísar leggur af stað klukkan snemma í fyrramálið og svo er það flugvél heim, setja í þvottavél og mæta í vinnuna á þriðjudagsmorgun . Allt gott tekur enda… kannski er það þessvegna sem það er gott! Fríið er að sjálfsögðu búið að [...]

eXTReMe Tracker