Grenoble

Jæja, fólk er búið að ranka við sér hér í suður-frans eftir skíðaferð gærdagsins og grín gærkvöldsins. Í gær var skíðað í Les2Alpes í glampandi sól og blíðu – með útsýni alla leið til Ítaliu og ég veit ekki hvað og hvað. Mundi vildi meina að við sæjum Mont Blank þarna ofan af toppnum . [...]

Allt klárt….

Stutt, Við erum komin til Frans, allt afbragðs, skíði í dag… 3200 metra hæð og háfjallasól. Búið.

Koma sér heim og út!

Ætli það sé ekki orðið tímabært að koma sér heim úr vinnunni og byrja að pakka fyrir Frans. Klukkan orðin vel rúmlega eitt og aðeins um 6 tímar í brottför. Hérna rétt áðan heyrði ég í skipsflautunni á M/S Helgafelli – það er leggja upp í sína rútíneruðu langferð um stærstu hafnir Evrópu og kemur [...]

Að bresta á…

Þá er fríið að bresta á. Við erum búin að vera mjög upptekin síðustu daga við að hreinsa upp allskonar vesen í vinnunni áður en við skellum okkur til Frans – maður er svona að reyna að lágmarka þann skít sem skilinn er eftir handa vinnufélögunum . En nú er þetta að hafast, ekki seinna [...]

Ekki alveg – en næstum

Frans-ferðin er að bresta á næstu örfáu sólarhringum – e-bay uppboðið sem ég er búinn að vera að sverma fyrir er líka rétt í þann mund að detta og sjálfur er ég alveg pottþétt farinn yfirum . Eina sem mér dettur í hug er lagið góðkunna með Mannakornum: Og ég bíð í röð á rauðu [...]

Einnar nætur gaman

Norðurferð helgarinnar var einnar nætur gaman – maður bara rétt skaust norður, svaf eina nótt í mjólkurhúsinu – skrúfaði heil ósköp í skúrnum og ók svo suður aftur. Skyndiheimsókn – alveg eldsnögg – stoppaði í 24 tíma. En það er nú þannig með norðurferðirnar að það er miklu skárra að fara norður og stoppa stutt [...]

Bílar

Staðan er 7 – 12 Nú er búið að selja Rocky – það er þó ekki búið að afhenda bílinn né er skrifa undir neina pappíra… en þetta er frágengið. Hann telst þó enn í minni/okkar eigu og því er staðan í bílamálum 7-12. 1. Bjalla, ’72. Fyrsti bíllinn, algóður sem slíkur, sé enn eftir [...]

Óvænt

Gærkvöldið var skemmtilega óvenjulegt vegna þess að okkur gafst tækifæri til að taka þátt í svona “óvænt” teiti. Hann Helgi Jónsson, bekkjarfélagi okkar Evu, Seyðfirðingur og töffari varð þrítugur í gær og af því tilefni hóaði Sona konan hans saman vel völdum hópi. Við mættum semsagt og komum Helga á óvart þegar hann kom heim [...]

Napur

Úti er napur vindurinn, runnar fjúka tvist og bast og snjór fýkur um stræti borgarinnar við sundin. Ég sit hér við gluggan minn, sé hvorki Viðey né Esju og blokkirnar viður við Kleppsveg eru í mósku. Maður pakkaður í rússnesska loðhúfu hleypur í tryllingi yfir Laugaveg og aldnar subaru bifreiðar skríða eftir götunum innan um [...]

Viltu þýfi væni ?

1. Helgin fór þokkalega með okkur að þessu sinni, vinna einkenndi dagana en góður matur vinir og afi kvöldin. Idol party hjá Torfa afa á föstudagskvöld, svefn í sófa á lau og síðbúinn sprengidagur og spilamennska hjá KoViDo á sunnudagskvöldið… allt ljómandi . 2. EN…. … Rocky seldist ekki þessa helgina. Það hinsvegar hringdu margir [...]

Sunnudagsmorgunn

Það er sunnudagsmorgunn og allt með kyrrum kjörum. Kaffið ilmaði fínt, kólumbískt – búin að drekka það. Ég setti ekki óhreint í vélina, tók bara hreint af snúrunni. Sólin lætur ekki sjá sig frekar en fyrri daginn og hvað þá að hún sitji borðið og sé yndisleg. Morgunblaðið kom í gærkvöldi og því hefur bréfarifan [...]

Allt að verða vitlaust…

Það markverðasta úr Fréttablaðinu í morgun: Já, það er komið á prent, ógnvænlegt alveg – Rocky, Hrætan, Hræ-ætan verður hugsanlega kannski bráðum seld. Þessi ágæti jeppi sem er búinn að bera okkur vandræða laust útum allt land, yfir læki og stórfljót, skoppandi hvert sem er án nokkurra bilana. Ég get ekki neitað því að ég [...]

eXTReMe Tracker