Atriðið

.. nú er ég í vondum málum, trallalalala la. Hvernig stendur á því að ég var settur í það að sjá um skemmtiatriði á jólahlaðborði fyrirtækisins – sem er NB! núna á föstudaginn? Hvernig stendur á því að hinn aðilinn í þessari tveggja manna skemmtinefnd er að fara til Svíþjóðar og skilur mig einan eftir [...]

First we take Jan Mayen… then we take Svalbard

Ég hef lengi verið talsmaður þess að við, Íslendingar, ættum að hafa yfirráð yfir Jan Mayen – hugsanlega Grænlendingar vegna landfræðilegrar legu en alls ekki Norðmenn. Nú stendur í mogganum að helvítis Norðmennirnir séu í þann mund að leggja af veðurstöðina á Jan Mayen og þar með fasta búsetu á eynni. Nú er því lag [...]

Hvar sem er….

Hvar sem við lendum hvar sem við endum … við ætlum út í kvöld gleðilega helgi.

Bubbi og Mundi

Við fórum á útgáfutónleikana hjá Bubba í Austurbæ í gærkvöldi. Bubbi er alltaf traustur og fór að vanda á nokkrum kostum þetta kvöld – þó er ég ekki frá því að tónleikarnir á NASA í fyrra hafi verið betri – án þess að það dragi nokkuð úr því hvað tónleikarnir voru með miklu ágætum í [...]

Latex

Færsla dagsins (soldið sein, en kemur samt ) Undanfarna daga hef ég farið talsvert uppá Hellisheiði, hef átt þangað erindi oftar en einu sinni. Heiðin er ágæt og þangað gott að fara og koma og er þá sama hvort rignir, blæs eða beljar. Það sem öllu máli skiptir við þessar aðstæður er að klæða sig [...]

Nokkrar…

Menn kvarta bara yfir færsluleysi gærdagsins . Gærdagurinn var reyndar svo góður að það bara var enginn tími til að vera eitthvað að netast. Eyddi hádeginu í mótorhjólabúðum útum allan bæ, fór svo uppá Hellisheiði í kuldagalla og djöflaðist eitthvað í snjó og veseni, skaust síðan í bæinn og fór í hnit með strákunum. Eva [...]

Slitinn og snjáður

Ég er verkfræðingur og vinn sem slíkur. Stundum mæti ég á fundi og á að leggja orð í belg, á eitthvað að hafa vit á hlutum og svona, á jafnvel að veita ráðleggingar. Þegar svona er skiptir sköpum að tekið sé mark á manni, maður verður að koma trúverðuglega fram, maður verður að koma fram [...]

Haus

… maður er kannski á haus… … það kemur færsla á eftir, ok

Komin heim

Þá er ein stærsta vinnutörn sem ég hef lent í búin – loksins! Ég hef varla komið heim til mín í 4 vikur, nema bara rétt til að sofa. Er orðin góður og gildur vöruhúsastarfsmaður í stáltáskóm, með gemsann á buxnastrengnum og armtölvu strappaða við vinstri handlegg… en hef hent hjálmadruslunni. Nú er því kominn [...]

Sofandi Shrek

Leigðum Shrek 2 í gærkvöldi, gott að slaka á eftir helgina snæða restina af læri laugardagsins. Stungum myndinni í tækið (fengum VHS, ekkert DVD eintak inni) og viti menn – þetta var með íslensku tali… úff. Það var ekkert um annað að ræða en að skila og fá aðra með ensku tali… hitt er alveg [...]

Nú er það svart maður…

… og allt orðið hvítt !

Að éta á sig gat….

Fylgifiskur gestagangs er át – át er gott. Í kvöld kláruðum við Eva, Hjölli og Magga eitt stykki lamblæri og marens köku í eftirrétt… úff – nú rúmlega miðnætti liggur fólk víðsvegar um íbúðina afvelta af ofaáti og í sykursjokki . Annars er allt í einu þannig komið að það er búið að skilja eftir [...]

eXTReMe Tracker