Hausverkur…. Höbðið á mér er að klofna, ég er með velling og almenna vanlíðan… og á leiðinni í frí. Hvernig er þetta eiginlega, ég er búinn að vera að stefna á nokkurra daga frí núna um allnokkurt skeið, búinn að fresta því tvisvar og loks þegar þetta er alveg klárt þá fæ ég vott af [...]

Á sandölum og stutterma… ég neita því alfarið að sumarið sé búið – það er rétt að byrja, með hliðsjón af því þá ákvað ég að hjóla í vinnuna í morgun á sandölum og stuttermabol, taka framúr 7 bílum á Háaleitisbrautinni og taka sumarfrí næstu daga. Það er fátt meira viðeigandi en sumarfrí um mánaðarmótin [...]

Nýtt eldhúsáhaldMamma kom færandi hendi frá Danaveldi í gærkvöldi. Færði okkur meðal annars forláta áhald í eldhúsið sem ég hef þegar prófað og finnst nú hið mesta þarfaþing og alveg bráðnauðsynlegt. Það má nú örugglega nota þetta í ýmislegt… en er sem sagt hannað í ákveðið verkefni…

Sumarið búið – eða haustið komið?Dagurinn í dag er haustdagur því: Það er rok og rigning Botnlaust að gera í vinnunni og laugardagar eru engin undantekning Bónus selur ekki lengur jarðaber og bláber Síðustu dagar útsölunnar eru um helgina Tilboð á árskortum í líkamsrækt streyma inn Sumarblómin í pottunum eru orðin brún Það tekur tvöfalt [...]

Grill…… í gær. í dag rok og rigning. Viðbót:… hvað er þetta fyndið? (.mov skrá)

Iðnfræðin…Það mætti halda að iðnfræði væri það allra heitasta í dag – og kannski er hún það, hver veit. Allavega er þannig nú að þrír af mínum vinum eru að byrja í iðnfræði núna í haust í Tækniskólanum – einn í rafmagns (Hjölli), einn í Byggingar (Mundi) og einn í véla (Bjössi). Þannig að þeir [...]

Bensín undir 100kr/L aldrei meir Eins og Atlantsolía hefur staðið sig frábærlega í að koma með almennilega verðsamkeppni inn á bensínmarkaðinn þá hefur verið tilkynnt að þeir ætli að hækka verð á morgun… og þá fylgja að sjálfsögðu allir aðrir á eftir. Þannig að nú er bara að tanka vel og taka út hjólið. Þegar [...]

Að heiman…. gríðarlegur munur að vera með svona þráðlaust ADSL heima, geta bara bloggað að heiman á kvöldin og svona – um leið og maður sinnir bankaviðskiptum og tékkar á breska bílamarkaðnum. Við þetta tækifæri væri alveg tilvalið að skrifa eitthvað sniðugt, eitthvað svona krassandi, einhverja fléttu…. … eða bara fara að sofa.

ADSL – Þegar við loksins drifum í því að fá okkur adsl heim þá fækkar bloggunum! Eftir heilan vinnudag fyrir framan tölvuskjáinn þá er fátt sem dregur mann að tölvunni á kvöldin. Það er samt ekki ónýtt að geta setið í sitthvoru horninu á stofunni og pikkað á lappana … svona þegar maður tekur sér [...]

Eru ekki allir í stuði ?(maður reynir alltaf að vitna í Hemma, í það minnsta einu sinni á dag) Lou Reed á föstudag var góður – sérstaklega var endaspretturinn traustur. Menningarnóttin var snilld, Egó rokkar mjög, Bubbi er kongurinn. Það sér fyrir endann á útihurðarlökkun – enda verkið hálfnað og hafið. … það sér hinsvegar [...]

SumarfríEigum við ekki bara að segja að síðuhaldarar hafi tekið sér frí frá skrifum undanfarna daga – nú rífum við þetta upp aftur. Menningarnótt tókst frábærlega vel – eða allavegana allir þeir atburðir sem við sáum. Við byrjuðum reyndar daginn á því að læsa okkur úti en tókst að brjótast inn til okkar, svo hlustuðum [...]

Ég er ekki frá því… …að hér hafi ríkt þögn, atgangurinn hefur verið með rólegara móti þessa vikuna. Skýringa er helst að leita í því að veðurblíða er með eindæmum, talsvert er að gera í vinnu og það á eftir að lakka útihurðina . p.s. einhver var að gera því skóna að gott væri að [...]

eXTReMe Tracker