… tja …. Mánudags morgun, á fætur ég fer….…. helgin er búin – ja því er nú ver….…. ég þrái að ver’í fríi – og fá að ráða sjálfum mér…. þessi texti (stórlega stolinn og breyttur af undirrituðum) finnst mér eiga vel við daginn í dag – það var alls enginn hressleiki ríkjandi á Víðimelnum [...]

Flott… það var ofsaflott brúðkaupið hjá þeim Óla og Haddý í gær – Stefán Hilmarsson og Jón Ólafsson sáu um tónlistina – það er alltaf líklegt til árangurs og árangurinn lét ekki á sér standa í gær ! Glæsileg athöfn og veisla, til hamingju með það !! meira síðar, myndir og eitthvað… Óli og Hildur [...]

Golf og grillGærdagurinn var alveg glymrandi – við sváfum nú vel út enda mættum við ekki fyrr en vel eftir miðnætt í Galtalæk eftir smá bílabras. Torfi var reyndar mættur í bílskúrinn vel fyrir hádegi og brasaði þar fram eftir degi á meðan ég fór í golf með Hlín (móðursystir Torfa) í Svarfaðardal. Golfvöllurinn þar [...]

BrakandiÞað er alveg brakandi þurrkur í sælunni núna – tóm gleði með það . Grillveisla í gærkvöldi og brúðkaup í kvöld…. 20°C á mælinum, Kaldbakur skartar sínu fegursta og Vaðlaheiðin orðin fagurgræn, jamm, vellíðan er talsverð ! Við erum búin að hafa það svona ofsalega gott…. og stefnir ekkert í að það breytist neitt, allavega [...]

Norður… og ábendingVið erum að fara norður á eftir – löng helgi í uppsiglingu, helsta tjónið bara að við verðum ekki með mótorhjólin með… humm, jæja, vonandi næst. Við erum semsagt að fara í brúðkaup á laugardaginn til vina okkar Óla og Hallfríðar (Óli var með mér í RGD á sínum tíma) – þau ætla [...]

SMSNú er Hróarskeldu hátíðin að hefjast í mörk Dana… og við erum náttúrulega bara á Íslandi en því er ekki þannig farið með þá vini mína Munda og Björninn því þeir eru ekki fjærri góðu gamni… nei ekki aldeilis, þeir eru í miðju góðs gamans drengirnir . Nú rignir yfir mann SMS-um þar sem skýrt [...]

Teip og traustir bílarTvö atriði sem ég vil nefna:1. Þessi frétt er sérstök – ég hef nú stundum sagt í gríni að best væri að teipa krakka til að halda þeim í skefjum…. en, tja, þetta er nú einum of tú möts ! 2. Hvíti Amazoninn (vonandi mynd á morgun) er algóður – boddýið er [...]

Fleiri Þýskalands síðurÞá erum við loksins búin að útbúa myndasíður fyrir 7.júní og 8.júní úr Þýskalandsferðinni – nokkrir rigningardagar í viðbót og þá tekst okkur kannski að klára þetta fyrir næstu reisu. Gærdagurinn var nokkuð hefðbundinn – nema hvað Ágúst Torfi innsiglaði kaup sín á hvíta Amazoninum með rauðu blettunum. Norðurferð með vagninn er á [...]

Tóma rugliðÆtli ég sé að snappa – er þetta búið…. ? Þannig var í gær að við fórum uppí Móso til Óla og Hildar og stússuðumst aðeins þar í sérverkefnum og löbbuðum svo með Hildi uppá Helgafell um kvöldið… sérleg kvöldganga. Þetta var nú alls ekki í frásögu færandi nema vegna þess að um 10 [...]

HjólatúrinnVið skelltum okkur sem sagt í hjólatúr í góða veðrinu í gær – keyrðum inn Hvalfjörðinn og þaðan yfir í Skorradal. Lögðum Trónunni við Skorradalsvatn og tókum út reiðhjólin okkar. Við enduðum á því að hjóla hringinn í kringum vatnið – passlega langur og skemmtilegur hjólatúr ýmist á malarvegi, moldarvegi, sandi, grjóti eða bara ófærum [...]

Zwickau og helginEitthvað fórst nú fyrir að setja Þýskalandsmyndir inn um helgina – það var bara svo margt annað skemmtilegt að gerast… hjólaferð umhverfis Skorradalsvatn í gær, mótorhjólaferð, útskriftarveisla, Royal, enn meiri hjól…. bara allt brjálað að gera . En að lokum, í gærkvöldi, fæddist ein myndasíða úr Evrópuferðinni – myndir frá heimsókn okkar til [...]

… þetta þarna “á eftir” kom ekkert í dag – enda lofaði ég engu – myndirnar koma bara á morgun í staðinn . ég er nefnilega að fara úr vinnunni og geri ekki meir, ok – til lukku með föstudaginn !

eXTReMe Tracker