Skattman… Tóma djöfuls vesenið að vera með einhvern heiðarleika… þegar ég var í Kanödu var ég með skólastyrk og taldi ég hann fram á skattframtalinu hérna heima (þ.e. sá sem gerði framtalið fyrir mig) og það varð til þess að ég þarf að greiða í einhvern framkvæmdasjóð aldraðra… jæja, var að hreinsa það upp núna, [...]

Strákarnir okkarHandboltaleikurinn í gær var mikil vonbrigði. Strákarnir gerðu helling af mistökum í seinni hálfleik en samt endaði leikurinn 32-31 – hefðum getað rúllað Spánverjum upp á góðum degi. Einar Örn var að mínu mati maður leiksins, skoraði tvö mörk úr horninu þegar við vorum tveimur mönnum færri. Við hljótum nú að vinna Rússa á [...]

Gestir…Það er von á góðum gestum til okkar um helgina – Hjölli og Magga ætla að halda í borgina á morgun föstudag og gista á stofugólfinu hjá okkur… það verður ekki ruslið í því að fá þau í heimsókn, síðast þegar þau komu fórum við í almagnaðan túr um Reykjanesið í sól og blíðu. Spáin [...]

KárahnjúkarÞað er undirskriftasöfnun í gangi á netinu til að mótmæla Kárahnjúkavirkjun og skora á Alþingi að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. Smellið [hér] til að skoða málið. Best að við látum það liggja milli hluta hver skoðun mín/okkar er á málinu svo umræður fari ekki út í einhverja pólitíska vitleysu.

KlippingÉg fór í klippingu í gær, sem er svo sem ekki í frásögur færandi nema ég fór að velta fyrir mér hvernig stæði á því að Torfi og reyndar karlmenn almennt tækju aldrei/sjaldan eftir því þegar konur þeirra fara í klippingu. Ég lét nú taka 5 cm af og skipti um lit og var þar [...]

Meiri bílarVið Torfi erum að fara að reynsluaka [svona] bíl á eftir. Annars langar okkur helst í eitthvað líkara [þessu] – en ætlum að láta það duga, þ.e. að langa bara í hann. Ég er ennþá krambúleruð á fótunum eftir að mazdið keyrði yfir mig – sem sagt þarna þegar ég gleymdi ljósunum á reyndi [...]

Djöfulsins andleysi… það er rólegt hjá okkur núna – það er eitthvert andleysi ríkjandi og allt of lítið skrifað, það þarf að laga það ! Fátt að frétta annað en það að við erum með augun opin varðandi jeppakaup – langar dálítið í fjórdrifs-farartæki til að leika okkur á í sumar… við erum nú róleg [...]

Óskar villtisagði: “Anyone who lives within their means suffers from a lack of imagination.” … með hliðsjón af því er ekkert svo slæmt að langa í allskonar sem maður hefur ekki efni á ! Óskar klikkar ekki, það má ljóst vera . …. já, og okkur langar í jeppa (Mastið ekki alveg að gera sig [...]

A,B,C,D,E,F,G… og hálftónar á milli öðru hverju.Undur og stórmerki áttu sér stað rétt í þessu – ég, Ágúst Torfi Hauksson, fór í tíma í gítarleik !!! Já já, maður er bara byrjaður í tónó aftur eftir… tja um 13 ára hlé eða svo. Fyrir margt löngu lærði ég á tréblásturshljóðfæri úr málmi – svo dvínaði [...]

MyndirJæja – loksins stelst ég til að setja inn nokkrar myndir frá því um helgina. Helgin fyrir norðan var góð – eins og venja er með helgar á þeim slóðum… já og reyndar helgar yfirleitt . Við tókum slatta af myndum um helgina og setjum hérna inn nokkrar… aðallega okkur til ánægju.Fyrst koma tvær myndir [...]

Ekki að gera sig… Tóma vesenið í gangi núna – .hi netþjónninn er ekki að gera það sem ég vil að hann geri núna… þ.e. hann hleypir mér ekki inn til að setja inn myndir og þessháttar + einhverjir hérna í vinnunni halda að það sé brjálað að gera og ég verð að vera með [...]

… myndirnar koma rétt á eftir – brjálað að gera á mánudagsmorgni í vinnunni

eXTReMe Tracker