Er ég einn um að nenna ekki að vera í vinnunni í dag ?

GrímuballNú er grímuball verkfræðifélaga okkar afstaðið – Baldur virtist nú standa fyrir flestu sem þarna var og fannst okkur hann standa sig afburðavel í skipulagshlutverkinu. Sérstaklega slógu karókígræjurnar í gegn eða öllu heldur slógu margir í gegn í karókígræjunum. Þar sem við tókum allmargar myndir þetta kvöld höfum við sett upp sérstaka myndasíðu frá kvöldinu. [...]

Milli jóla og nýársJæja, þá er farið að síga á seinnihlutann á jólafríinu þetta árið – það er ekki eins og þegar maður var í skólanum… nú þarf að vinna og vera með einhver læti – ómögulegt helvíti. Hvað um það, svona er þetta bara og þýðir lítið að gráta það. Jólafríið hefur verið gott [...]

Gleðileg jólLoksins er allt tilbúið og jólahátíðin ekki langt undan….búið að skreyta tréð, kalkúninn kominn í ofninn og pakkarnir komnir undir tré. Þá á maður bara eftir að koma sér í betri fötin (það er ennþá skötulykt af peysunni minni frá því í gær svo líklegast slepp ég ekki við að skipta um föt), setja [...]

Sjallinn…Það er sko alveg á hreinu að Sálin hans Jóns míns er ballhljómsveit á sverari gerðinni og það sönnuðu þeir félagar enn eina ferðina í Sjallanum í gærkvöldi. Við fórum út að borða á Greifanum fyrir ballið gömlu RGD félagarnir (þ.e. ég, Hjölli og Óli Þór ásamt hluta fylgifiska) og svo var haldið á ballið [...]

FiðringurÞessi síðasti vinnudagur fyrir jól er að fara í tómt rugl – væri hollast að hætta þessu bara og koma sér í jólafrí… en, það verður víst ekki á allt kosið (allavega ekki í sveitarstjórnarkostningum (BVJ)). Svo er það bara Sjallinn á morgun… og kominn hugur í menn með það, Hjölli að fara að redda [...]

JafnréttiEftir svita og tár í Kringlunni í gær yfirgáfum við Torfi örtröðina og héldum heim, ég settist í sófann, kveikti á útvarpinu og ætlaði að losna við jólastressið með því að hlusta á jólalög og borða smákökur. Það tókst nú alveg bærilega en svo fór ég að rifja upp hið kostulega mál jafnréttisfulltrúa Háskólans sem [...]

StúfurHildur og Óli litu í heimsókn í gærkvöldi ásamt Stúfi (Þórdísi) sem fékk að naga fjarstýringuna okkar og lemja aðeins gítarinn hans Torfa. Við elduðum kjúkling sem við átum svo með ágætri lyst og að sjálfsögðu emmess ís í eftirmat. Þórdís varð samt að láta sér nægja kaldan hafragraut úr krukku – e.t.v. þess vegna [...]

Skriðinn samanJæja, þá er ég klæddur og kominn á ról eftir rúm og sófalegur síðustu tveggja daga… tóma vesenið að vera veikur – ég mun ekki nenna því aftur í bráð, það er alveg ljóst.

KonfektNú liggur Ágúst Torfi víst veikur heima – þeim sem er annt um hann er bent á að hann tekur við vídeóspólum og íslensku sælgæti á Víðimelnum í dag. Í gærkvöldi var ég svo í konfektgerð með Barbiegellunum sem tókst með afbrigðum vel. Hulda er reynslumikil í konfektgerðinni og stýrði okkur hinum í átt að [...]

Mánudagsmorgun…… á fætur ég fer !Enn ein vinnuvikan að hefjast – vill hinsvegar svo skemmtilega til að þetta er sú síðasta fyrir jól – tóm gleði með það. Helgin gekk stórtíðindalaus fyrir sig hjá okkur að þessu sinni – ég eyddi lunganum úr laugardeginum í að bera eigur afa míns ofan af þriðju hæð (ekki [...]

BítarnirÞað varð úr að ég skellti mér á Naglbítana í gærkvöldi. Við komum þarna saman strákarnir – nokkrir sem vorum saman í verkfræðinni á sínum tíma (Baldur, Pippi, Geir og Þórður) og hlýddum á 3 naglbíta leika. Tónleikarnir voru bara alveg ágætir, mikil keyrsla og ótrúlega þétt band – sérstaklega ef miðað er við að [...]

eXTReMe Tracker