Meiri Vinir… Erum við orðin fíklar í Vini þegar svo er komið að maður hittir dökkklædda menn á baklóðum stórhýsa og skiptir við þá á geisladiskum sem innihalda nýjustu þættina á .mpg formi…. er ástæða til að hafa áhyggjur ? Þetta er nákvæmlega það sem að gerðist í dag – ég fór og hitti dökkklæddan [...]
Filed under: General on October 31st, 2002 | No Comments »
Blóm á borðiÞegar við komum heim úr vinnunni á mánudaginn þá beið okkar stærðarinnar blóm á “borðstofuborðinu” (ekki svo að skilja að við séum með borðstofu… við erum bara með eldhúsborð inní stofu og köllum það borðstofu og var þessi forláta planta gjöf frá Hjölla og Möggu (skildu grasið bara eftir í reiðileysi) – hún [...]
Filed under: General on October 30th, 2002 | No Comments »
MyndirFleiri myndir – myndir úr sumarbústaðar-Þingvallaferð Evu með vinkonum sínum um helgina má nálgast [hér] og myndir úr ökurferðinni sem við fórum í með Hjölla og Möggu um Reykjanesið eru [hér].… nú er svo ný vika byrjuð með vinnu og vandræðum og við erum þegar farin að hlakka til að fara norður um næstu helgi [...]
Filed under: General on October 28th, 2002 | No Comments »
Góð helgi liðinHelgin var nokkuð annasöm og munum við fljótlega setja upp myndasíður úr gönguferðum og ökutúrum. Eva fór í bústaðarferð með barbiegellunum á meðan Ágúst Torfi valsaði um með Hjörleifi og Margréti, stórvinum okkur að norðan. Bústaðarferðin fól í sér dágóðan gönguferð um Nesjavallasvæðið og svo alveg helling af mat – það borðuðu nær [...]
Filed under: General on October 28th, 2002 | No Comments »
Bubbi kominn og Ron á leiðinniVið erum búin að setja inn myndirnar og myndböndin frá Bubba-tónleikunum á fimmtudaginn. Þetta voru ótrúlegir tónleikar, hreint út sagt ótrúlegir tónleikar… Bubbi í mjög góðu formi og valinn maður í hverju rúmi í hljómsveit hans þetta kvöldið. Aðrir eru bara ekki eins góðir og Bubbi, það er bara þannig. [...]
Filed under: General on October 26th, 2002 | No Comments »
Bubbi bestur !!Við fórum á tónleika með Bubba á NASA í gærkvöldi… Ásbjörn klikkaði ekki, var raunar alveg ótrúlega góður – maðurinn er snillingur, það er ekkert flóknara en það. Við tókum svolítið af myndum og nokkur stutt myndbönd sem við munum setja inn á síðuna síðar í dag. En lesandi góður… ef þú varst [...]
Filed under: General on October 25th, 2002 | No Comments »
Rólegir dagarFyrripartur vikunnar hefur verið með allra rólegasta móti – raunar það eina sem gerst hefur annað en að vinna og sofa er að við fórum upp í Mosfellsdalinn til Hildar og Óla á mánudagskvöldið. Bremsubúnaður Jeep biðreiðar heimilisins hafði þá eitthvað svikið Óla svo við rukum í viðgerðir félagarnir… afgreiddum það á núll níu [...]
Filed under: General on October 23rd, 2002 | No Comments »
Í Bústað með Baldri og SvanhildiNú er góð helgi u.þ.b. búin – Torfi fór í fyrsta vinnustaða teitið á föstudaginn og við fórum svo í sumarbústað til Baldurs og Svanhildar á laugardaginn. Þar var spilað, spjallað og borðað fram undir morgun (Torfi og Baldur voru í pottinum fram undir sólarupprás) og kunnum við þeim bestu [...]
Filed under: General on October 20th, 2002 | No Comments »
Mosfell og Þórdís litlaNú er helgin alveg að renna í hlað og það verður víst nóg um að vera í Reykjavíkinni, tónleikar á hverju strái og bústaðarferð fyrirhuguð á laugardaginn. Við erum líka búin að hafa nóg fyrir stafni undanfarna daga. Eins og Torfi minntist á komu Hildur og Óli í mat til okkur á [...]
Filed under: General on October 17th, 2002 | No Comments »
Allt og ekkertVið fengum Óla, Hildi og Þórdísi í heimsókn á mánudagskvöldið, Eva galdraði fram pasta með piparsósu frá MS og Hildur græjaði skúffuköku úr Vilkó kassa… allt gersamlega klárt á núll-níu, næstumþvíhérumbilalvegeins og í Ameríkunni (þar væri reyndar Safeway lasagne og Betty Crocker skúffukaka… ég sagði líka næstum . Í gærkvöldi gerðist svo nokkuð [...]
Filed under: General on October 16th, 2002 | No Comments »
Afrek helgarinnarÞá erum við komin suður aftur og mætt til vinnu eftir góða helgi fyrir norðan. Um það bil 10 mínútum eftir að við renndum í hlaðið á Galtalæk á föstudagseftirmiðdeginum var Torfi lagður af stað inn í Reykjadal ásamt Hauki að ná í forláta Citroen bifreið, sem mun vera yngsti bíll í eigu fjölskyldunnar [...]
Filed under: General on October 14th, 2002 | No Comments »
Nokkrar myndir…Jæja – nú er vinnuvikunni u.þ.b. að ljúka og kominn fiðringur í suma enda stefnan sett á norðurlandið núna rétt á eftir. Mastið fær að hvíla sig við Víðimelinn um helgina þar sem að Mundi er að fara norður í gæsir og við fáum far með honum … þ.e. förum semsagt þrjú saman á [...]
Filed under: General on October 11th, 2002 | No Comments »