Í LA, 28 ára og alveg að drepast úr hitaÉg (ÁTH) vil nota þetta tækifæri til að þakka hlý orð í minn garð á þessum degi (sem er í raun sorgardagur og tek ég því kveðjum þessum sem samúðarkveðjum). Það gleður okkur að sjá öll þessi skrif í gestabókina – það hvetur okkur áfram í [...]

Loksins uppfært – Monterey, CA.Nú erum við búin að flækjast um mikið síðan að við uppfærðum síðuna síðast og því kominn tími til. Við bætum nú inn efni síðustu daga að gærdeginum undanskildum, hann bíður. Við erum núna komin niður að strönd að nýju en hér er nú allt krökkt af fólki enda er núna [...]

Santa Rosa í rigningu Við erum núna stödd í Santa Rósa sem er lítil borg (170.000 íbúar) rétt norðan við San Fransico. Hér er búið að ganga á ýmsu og tók steininn úr í morgun þegar hann kom með haglél – við vorum sem betur fer búin að taka tjaldið saman. En við erum semsagt [...]

Oregon StrandlengjanLögðum af stað frá Seattle á þriðjudagsmorgun og settum stefnuna á Portland Oregon. Erum nú búin að keyra um 300 km eftir strandlengju Oregon í slíku blíðskaparveðri að heimamenn hafa varla séð annað eins. Hér er reyndar alltaf rok – eins og í Reykjavík – en það gerir brim Kyrrahafsins bara ennþá tignarlegra. Rokið [...]

MæðradagurVið viljum nota þetta tækifæri, í tilefni af því að mæðradagurinn var í gær, og þakka mæðrum okkar fyrir vel unnin störf gegnum árin. Þúsund þakkir fyrir það (við treystum svo á ykkur þegar okkur fer að langa í flugmiða heim… við ætlum til Las Vegas og því ómögulegt að vita hvort við höfum efni [...]

Farin af staðNúna á laugardagsmorgni leggjum við formlega af stað í ferðalagið okkar – búið er að setja alla leppana í töskur og því fátt að vanbúnaði að leggja í hann. Stefnan er sett á Seattle í dag en búið var fyrir allnokkru að boða okkur í grillveislu hjá prófessornum hennar Evu núna eftir hádegið.Við [...]

Góðir vinir kvaddirDagurinn í gær, fimmturdagur, fór að mestu í það að snúst um sjálf okkur hér í borginni, kaupa tjald og annað þvíumlíkt. Við byrjuðum daginn á því að keyra Ingimund, Sif og krakkana á flugvöllinn en þau eru núna komin til Florida þar sem ætlunin er að sleikja sólina flatmagandi á hvítum ströndum. [...]

Eva komin frá Japan og nýtt efni… Eva komst að mestu ósködduð aftur í siðmenninguna eftir útlegðina í Japan. Vél með hana innanborðs lenti á Vancouver flugvelli klukkan 10 árdegis 7. dag maimánaðar. Ég tók þar á móti henni og höfum við verið að undirbúa okkur fyrir bíltúrinn síðan. Við hlökkum ansi hreint mikið til [...]

Gítarinn sjálfurÉg brá mér í heimsókn núna áðan til hennar Þórdísar nýbakaðs gítareiganda. Tilgangur ferðarinnar var tvíþættur, annarsvegar að smella nokkrum myndum af gítarnum fræga (gert vegna fjölda áskorana að heiman ) og hinsvegar að leiðbeina Þórdísi eitthvað við hljómamyndun og áslátt. Myndirnar voru teknar en það var einungis spilað í nokkrar mínútur og réðst [...]

Í JapanRödd Torfa hefur verið allsráðandi undanfarnar vikur enda hef ég verið á þeytingi og er núna stödd í Japan. Tilgangur ferðarinn er árlegur fundur vísindanefndar hvalveiðiráðsins – í stuttu máli sagt þá hlakka ég mikið til að fljúga “heim” til Vancouver á þriðjudag. Ég á nú eiginlega hvergi heima þessa stundina – nema þá [...]

Þórdís fékk gítarHún Þórdís stórvinkona okkar allra átti afmæli um daginn. Frekar dróst nú að kaupa handa henni gjöfina en þegar loksins var drifið í því þá var ekkert verið að gera það með hangandi hendi. Við Sif (sambýliskona mín ? fórum í bæinn og slitum í okkur eins og einn gítar af Aria gerð, [...]

Síðan flutt Í dag flutti ég síðuna frá Slóvakíu (af öllum stöðum), þar sem ég geymdi hana á meðan verið var að stússast í henni og gera hana boðlega, og yfir á hi.is vefsvæðið hennar Evu. Hérna er ætlunin að láta síðuna vera í það minnsta í sumar og vonumst við til að sæmilegt verði [...]

eXTReMe Tracker