Svipur hjá sjón

Var eitthvað að gramsa í símanum mínum og fann þessar frá því í sumar:

Enn koma myndir

Nú er við hæfi að henda inn nokkrum myndum úr útilegum og öðru gríni. Við heimsóttum meðal annars austurland og eru þessar meira og minna þaðan auk einhverra mynda af heimavígstöðvunum.

Njótið:

Vó – allt að gerast

Nú koma nokkrar myndir af snúllum. Þær eru búnar að gera allskonar í sumar – þetta er svona fyrsti skammtur af sumarmyndum.
Það var upplifun og prófraun þegar þær voru í pössum hjá ömmu og afa (Öldu og Derek) í rúma 10 daga meðan foreldrarnir stungu af í vesturheim. Það gekk að sjálfsögðu ljómandi vel – svo hafa þær verið eitthvað að þvælast með foreldrunum um landið og brasað með okkur á heimaslóðum þess á milli.

Nokkrar myndir:

Lífsmark

Nú, öllum að óvörum, þá bara kemur hér inn ný færsla eftir lengsta hlé frá því síðan fór í loftið árið 2002.
Við erum semsagt komin úr sleðaferðinni uppá Hlíðarfjall (reyndar um 2,5 mánuðir síðan) og erum búin að gera allskonar síðan þá. Við til að mynda fórum í 10 daga ferð á vesturströnd Bandaríkjanna og til Alaska. Höfum farið í útilegur, smíðað og brasað heimvið, unnið og leikið okkur.
Ég er búinn að hjóla svolítið í sumar á mínu forláta vélhjóli og Eva fór 18 holur á undir 100 höggum um daginn… svo þetta er bara búið að vera alveg ljómandi gott sumar.

Nú er atgangur að lifna við aftur eftir smá frí og best að byrja á því að setja hér inn nokkrar myndir frá Alaska för okkar. Í Alaska þá skoðuðum við aðallega Aleutian eyjarnar sem er eyjaklasinn sem teygir sig frá Alaska og yfir kyrrahafið í átt að hinum föllnu Sovétríkjum. Þarna skoðuðum við allskonar starfssemi og nutum hreina loftsins. Við enduðum svo túrinn á því að fara í veiði – og það er eins og með annað í Ameríku… stærra.

myndir:

Hlíðarfjall

Torfi bauð mér upp á Hlíðarfjall um daginn – ekki amalegt að komast upp á toppinn á 10 mínútum á vélsleða þegar vel er gengið á júnímánuð. Útsýnið af toppnum var stórkostlegt og sáum við Herðubreið og Mývatnssveitina í austri, út allan Eyjafjörðinn til norðurs og svo auðvitað nærliggjandi fjöll eins og Kerlingu og Súlur. Hlíðarfjall er glettilega hátt og því gott útsýni af toppnum þegar þokan leggst ekki yfir fjörðinn. Hér eru nokkrar myndir af okkur og útsýninu – engar barnamyndir í þetta sinn!

Sveitaferð

Skelltum okkur í sveitina að skoða lömbin eina helgi í maí mánuði. Lömbin í Mývatnssveit voru heimsótt og skoðuð líkt og við gerðum í fyrra. Þá var Bryndís tæplega 2 mánaða gömul og var nokkuð sama um lyktina og hávaðann, bara ef hún fékk mjólkina sína og Ragnhildur tæplega 2 ára gömul og frekar smeyk við þessa ferfætlinga en hafði þeim mun meiri áhuga á mótorhjólum, traktorum og fjórhjólum. Núna, ári síðar, hafa stelpurnar sjóast töluvert og sýndu lömbum mikinn áhuga auk þess sem Ragnhildur Edda valsaði sjálfsörugg um garðana. Eftir heimsóknina í sveitina fórum við í lónið og skoluðum af okkur, fundum okkur svo tjaldsvæði, grilluðum pylsur og fórum í fyrstu útilegu sumarsins.

Framkvæmdahugur

Með vorinu byrjuðum við á ýmsum framkvæmdum í garðinum og húsinu. Við lögðum afar bjartsýn af stað og settum okkur þau markmið að klára að koma pottinum fyrir á pallinum og setja handrið á svalirnir áður en amma og afi kæmu í heimsókn… þau komu í gær! Í stuttu máli þá sannaðist það að full vinna + tvö lítil börn tekur sinn tíma og þær mínútur sem maður hefur á kvöldin eftir að allir eru komnir í ró eru fljótar að líða. En við vissum þetta svo sem – vildum bara vera bjartsýn. Nú sem sagt er potturinn nánast kominn á sinn stað, við eigum þó eftir að tengja hann inn í bílskúr og klæða kringum hann (dágóður slatti eftir!) en svalirnir eru langt frá því að komast upp. Við eyddum síðustu þremur kvöldum í að bera á viðinn sem fer í handriðið og Torfi er búinn að festa nokkrar uppistöður í steypuna… en nú er sem sagt trikkí hlutinn eftir, þ.e. að koma klæðningunni á uppistöðurnar. Hér eru nokkrar myndir frá framkvæmdum… og af sérlegum aðstoðarmanni okkar. En er ekki verkið hálfnað þá hafið er?

Sumardagurinn fyrsti

Undanfarnar tvær vikur hefur veðrið verið frábært, sól á himni og alveg þokkalega hlýtt þó að við værum alveg til í að sjá tveggja stafa tölurnar oftar. Vegna þessa góða veðurs höfum við lítið haldið okkur inni og því lítið heyrst í okkur hér á atgangi. Þegar ég var svo að fara gegnum myndirnar sem höfðu safnast fyrir á myndavélinni tók ég eftir nokkrum góðum myndum frá sumardeginum fyrsta enda kom þá Sigrún vinkona Ragnhildar Eddu í heimsókn ásamt fjölskyldu sinni. Hér koma myndir af þeim vinkonum og svo eru væntanlegar fleiri myndir á allra næstu dögum enda voru yfir 200 myndir á vélinni og sem betur fer nokkrar góðar.

Hoppað

Fyrsta alvöru sumarhelgin er nú að baki. Veðrið þessa helgi er vonandi fyrirboði um það sem koma skal. Við byrjuðum helgina á grillveislu, tókum svo laugardaginn í framkvæmdir í garðinum, timburkaup og árshátíð hjá Brim. Í dag fór svo húsbóndinn á vélsleða á meðan við Ragnhildur Edda dunduðum okkur á pallinum og í garðinum en Bryndís Eva svaf í vagninum. Á pallinum er trampólín og á því getur Ragnhildur Edda hoppað og hoppað – eins og myndirnar sýna. Svo var haldið áfram með framkvæmdir seinni hluta dagsins, farið í sund og að lokum slakað á eftir góða helgi. Ég er ekki frá því að við höfum öll fengið smá sól á okkur og að það styttist mjög í almennilega útilegu.

Fyrsta “útilega” ársins

Við fórum í fyrstu útilegu ársins um síðustu helgi. Hittum góðan hóp af vinum í Vatnsdalnum og gistum þar í góðu yfirlæti og átum á okkur gat. Þetta var reyndar ekki eiginlega útilega, þar sem við létum fara vel um okkur í vel upphituðu, stærðarinnar veiðihúsi en þegar svo mörg börn eru í för er útilega kannski ekki efst á óskalistanum. Mun betra er að sofa inni og henda svo bara börnunum út fyrir dyr yfir daginn. Þau voru alsæl í sveitinni og Ragnhildur Edda elti stóru stelpurnar um allt og gerði eins og þær. Hér koma svo myndir – aðallega af börnunum… ansi myndarlegur hópur þó við segjum sjálf frá :-)

Myndir frá eldgosi

Við Torfi drógum vélsleðann með okkur suður og vonuðum svo bara að við fengjum tækifæri til að kíkja á eldgosið á Fimmvörðuhálsi. Á föstudaginn langa var svo ágætt veður og amma og afi til í að passa stelpurnar í nokkra tíma. Við drifum okkur því austur, keyrðum að Sólheimahjáleigu og tókum sleðann af kerrunni þar. Torfi ók svo með mig hangandi aftaná sem leið lá beint að gosinu. Það voru allskonar faratæki þarna á jöklinum – aðallega jeppar þó og nokkuð ljóst að það er nóg til af breyttum jeppum, við þurfum ekki að flytja inn fleiri þannig. Það var líka mjög óraunverulegt að sjá nokkrar þyrlur á jöklinum og enn fleiri sveimandi yfir höfðinu á manni.

Gosið var svo alveg magnað og ekki spillti að það var frábært útsýni yfir Þórsmörkina. Það er alltaf jafn glæsilegt að horfa yfir snæviþakkta fjallstinda, sem virðast vera alveg óspilltir úr nægilega mikilli fjarlægð, engar rafmagnslínur eða önnur mannvirki sjáanleg. Við horfðum svo yfir á Morinsheiði þar sem hópur göngufólks stóð og virti fyrir sér svart hraun.

Eftir að við vorum búin að skoða báðar sprungurnar drifum við okkur niður aftur og þá var það bara heitt kakó og samlokur, enda hífandi rok og vel kalt á jöklinum. Bjössi og Hildur komu svo stuttu síðar og fór Torfi þá aðra ferð með þeim á meðan ég keyrði í bæinn til að taka við þreyttum stelpum og koma þeim í svefn. Flottur föstudagur.

Myndir

Hér koma nokkrar velvaldar myndir frá páskahelginni. Við héldum eins og fyrr sagði uppá afmælið hennar Bryndísar Evu á annan í páskum. Það gafst lítill tími til að mynda veisluna, gestina og afmælisbarnið en afinn tók tvær myndir af okkur við afmæliskökuna og sendi okkur. Fínar fjölskyldumyndir sem munu rata í albúmið. Svo eru tvær góðar af Ragnhildi Eddu sem finnur alltaf uppá einhverju sniðugu. Á morgun koma svo myndir frá ferðalagi okkar uppá Mýrdalsjökul.

eXTReMe Tracker